Velkomin á heimasíðu árgangs 1948 úr Vestmannaeyjum
Hér eru myndir frá
mótinu 2002
Nú er hægt að skrá sig í gestabók árgangsins með því að
stiðja á tengingarnar hér fyrir neðan.
Skrá
í gestabók eða Skoða
gestabók
19. júní 2002. Enn bíð ég eftir að fá myndir af Riverdansinum og þeim
sem fluttu minni kvenna og karla. Ég vona að einhver ykkar geti bjargað mér um
þetta.
9. júní 2002. Núna er að byrja að myndast síða fyrir árgangsmótið 2002
undir Myndir/Árgangsmót/2002. Á hófinu í gærkvöldi var kosin ný
Undirbúningsnefnd og virðist samkvæmt því stefnt á eyjuna hér fyrir norðan okkur
með næsta árgangsmót. Ég vil hér með þakka gömlu nefndinni fyrir vel unnin
störf, og óska þeirri nýju alls góðs. Vefstjóri
31. mars 2002. Nú hefur Undirbúningsnefnd árgangsmótsins 2002 sent frá
sér nákvæmari upplýsingar um árgangsmótið í sumar. Með því að klykka á tengilinn
hér fyrir aftan má sjá það bréf. Þar í eru einnig upplýsingar um það hverjir
taka á móti skráningu á árgangsmótið og eru þið kvött til að tilkynna ykkur sem
fyrst. Bréf 2. Ég hef sjálfur verið nokkuð latur við
þessa heimasíðu að undanförnu en er búinn að fá nokkrar myndir og vonast til að
láta þær út á vefinn á næstu vikum.
19. nóvember 2001. Páll G. Árnason skrifar eftirfarandi í gestabókina.
Ágæta fermingasystkyn ég veit ekki
hvort ég á að nefna það en við eigum 40 ára fermingarafmæli í vor, það er ástða
til að mæta. Kveðja Palli.
18. nóvember 2001. Nú fer að styttast í að endanleg dagsetning komi á
árgangsmótið á næsta ári líklegast rétt fyrir miðjan júní, en nánar núna á næstu
dögum. Núna eru 29 búnir að skrá sig í gestabókina, betur má ef duga skal.
5. júli 2001. Fréttst hefur að Bubbi kóngur vor hafi sett
bæjarstjórnarkosningar á þá helgi sem búið var að festa fyrir
árgangsmótið árið 2001. Engar nýjar tölur hafa heirst, svo að ætla má
að unnið sé í málinu.
8. júní 2001. Og boð komu frá Ragga i Lambhaga
10. maí 2001. Þeir úr okkar merka árgangi 1948 úr Eyjum sem skrá sig í gestabókina,
fara í póstbókina okkar og fá sendar upplýsingar í tölvupósti þegar
eitthvað er að gerast á vefnum. vefmeistari verður meira og minna í
Reykjavík næstu viku.
19.06.2002.
Ég er að hugsa um að seta dagsetningar við þetta bull sem ég skrifa
hérna. Ég vona að þetta skili sér í Íslensku sniði en það má vel vera
að það breytist þar sem vefurinn er vistaður fyrir vestan haf. Og bið ég
velvirðingar á því.
Ég var að seta upp nokkrar sýður með myndum aðallega frá árgangsmótum og eina
undir Barnaskóla eldri. Mér virðist af þeim fáu sem hafa skrifað mér að mestur
áhugi virðist á eldri myndum, þá úr barna og
gaggó. Ef þið lúrið á einhverjum þá hafið endilega samband. Það
fjölgar löturhægt á tenglasíðunni okkar en kannski kemur þó hægt fari.
Hvar eruð þið hin?
konnieinars@simnet.is
Ég þarf að fá
upplýsingar og tillögur frá ykkur úr 48 árganginum.
Ef þetta verður einhver alvöru vefur með miklu efni munum við þurfa að
fá hann „hýstan“ á öðru vefsvæði, og verður þá einhver sem tök
hefur á ódýru svæði að redda okkur um pláss.
Þetta er byrjunin.
Kveðja Konni: (þið úr
árganginum sem viljið láta vita af ykkur á vefnum verðið að senda
mér efni í netpósti styðjið á undirstrikaða Konni
til að senda póst.)