Ný og endurbætt síða er í vinnslu. Þannig að ég kastaði þessu upp núna til að sýna vörur og annað.

 


CDs


Myrk - Icons of the Dark
Alíslenskt blackmetal! Hefur verið að fá góða dóma, skyldueign! Immortal - Pure holocaust
Fyrsta breiðskífa hinna norsku blackmetal guða! Hrátt og ískalt!


Enslaved - Below the lights
Nýjasta afurð Enslaved, virkilega framsækin og góð viking/black metal plata!


Enslaved - Mardraum
Að mínu mati ein besta plata sveitarinnar. Frábær plata!


Impaled Nazarene - All that you fear
Nýjasta plata Finnsku pönkblackmetalpaddana!


Winds - The Imaginary Direction of Time
Frábær ný plata með norsku progmetal sveitinni Winds, sem inniheldur meðal annars Hellhammer úr Mayhem!


Ragnarok - Blackdoor Miracle
Nýjasta plata Ragnarok. Virkilega hröð og grinduð blackmetal plata!


Subterranean Masquerade - Tempoary Psychotic state
Nafnið á bandinu er jafn flókið og platan er, gífurlega flott prog/doom/rock frá Bandaríkjunum!


The Forsaken - Manifest of Hate
Brútal sænskt death metal með smá blackmetal áhrifum, teknískir og töff! Mæli með þeim!


Repugnat - Premature Burial
Alvöru old school death metal. Þessi 7" er forsmekkur á það sem nýjasta plata þeirra mun innihalda.

Zines

The sinisters flame.
Finnskt blað 48 síður af death og blackmetali. Viðtöl við Craft, Shining og fleiri. Ótal plötudómar og fleira Stútfullt af dauða