![]() |
![]() |
Taflfélag Garðabæjar og Íslenskir Aðalverktakar bjóða til Bikarkeppni ÍAV. Beinar lýsingar: 16.09.2002. Viðureign Hellis-b og Skákfélags Akureyrar 4,5-7,5 úrslit liggja nú fyrir Jón Garðar vann Ingvar, en Stefán Bergson tapaði hinsvegar fyrir Vigfúsi eftir mikið tímahrak en Gummi Gísla sló endahnútinn fyrir Akureyri með sigri á Andra Áss. Seinni umferðin fór því 4,5 - 1,5 fyrir SA. Einstök úrslit: Hellir-b - SA 4,5-7,5. Bragi Halldórsson - Jóhann Hjartarson 0-2 Ingvar Ásmundsson - Jón Garðar Viðarsson 0,5-1,5 Andri Áss Grétarsson - Guðmundur Gíslason 1-1 Snorri Bergsson - Arnar Þorsteinsson 1-1 Gunnar Björnsson - Rúnar Sigurpálsson 0-2 Vigfús Óðinn Vigfússon - Pálmi Pétursson 1-0 Vigfús Óðinn Vigfússon - Stefán Bergsson 1-0 Jóhann vann Braga Halldórs og staðan er því 3,5 gegn 5,5 vinningum SA. Akureyringa vantar því aðeins einn vinning til að sigra. Jón Garðar hefur kolunnið á móti Ingvari Ásmunds. Fyrstu úrslitin í seinni umferð voru að detta inn. Snorri og Arnar gerðu jafntefli en Rúnar Sigurpáls vann Gunnar Björnsson. Staðan núna er því Hellir-3,5 gegn 4,5 vinningi SA. Útlitið í öðrum skákum er vænlegt fyrir SA menn og er td. Jóhann Hjartarson með líklega unnið og Jón Garðar hefur betri stöðu. Jóhann var að hirða peð af Braga og virðist vera kominn með betri stöðu. Nú þegar um 10 mínútur eru liðnar af seinni umferð er staðan enn í járnum. Snorri teflir franska vörn á móti Arnari. Sikileyjarvörn kom upp hjá Andra Áss og Gumma Gísla en ómögulegt var að þekkja aðrar byrjanir af stöðunum þegar 10 - 20 leikjum er lokið. Seinni umferð er nú að hefjast og er liðskipan eins að því undanskildu að Stefán Bergsson kemur inn á 6. borð í stað Pálma Péturssonar í liði SA. Andri grísaði á Gumma Gísla og staðan er því jöfn 3-3 eftir fyrri umferð, eftir að útlitið hafði verið frekar dauft fyrir Hellismenn og staðan 3-1 á tímabili. Nú eru úrslitin farin að detta inn og er staðan nú 2-3 fyrir Akureyri þegar einni skák í fyrri umferð er ólokið. Jóhann vann Braga, Ingvar og Jón Garðar gerðu jafntefli sem og Arnar og Snorri. Gunnar tapaði fyrir Rúnari en Vigfús vann Pálma. Viðureign kvöldsins er nýhafin. Hellir-b gegn Skákfélagi Akureyrar. Þessi leikur er einnig á Lengjunni. Lið heimamanna í Helli-b 1. Bragi Halldórsson 2. Ingvar Ásmundsson 3. Andri Áss Grétarsson 4. Snorri G. Bergsson 5. Gunnar Björnsson 6. Vigfús Óðinn Vigfússon Lið Skákfélags Akureyrar 1. Jóhann Hjartarsson stórmeistari 2. Jón Garðar Viðarsson 3. Guðmundur Gíslason 4. Arnar Þorsteinsson 5. Rúnar Sigurpálsson 6. Pálmi Pétursson 1.v. Stefán Bergsson |
![]() |
![]() |
![]() |