![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
| Heim | Uppfært 26.8.2002. | |||||||||||||||||||||||||||
| Taflfélag Garðabæjar.hefur valið hóp af TG-ingum í Meistaraflokkslið T.G. Þessi hópur er eins og er skipaður níu mönnum: Baldvin Gíslason, Björn Jónsson, Jóhann H. Ragnarsson, Jóhann Helgi Sigurðsson, Kjartan T. Wikfeldt, Leifur Vilmundarson, Skúli Haukur Sigurðarson, Sindri Guðjónsson og Páll Sigurðsson. Ef sterkur einstaklingur kemur í TG eða einhver efnilegur kemur upp úr unglingastarfinu verður þeim bætt við. Að sjálfsögðu einnig ef félagsmaður í TG bætir sig eða fellur að kröfum að öðru leyti. Þessi hópur fær sér þjálfun og aðstöðu. Á móti eru gerðar ýmsar kröfu á hann líka. Helstu atriði eru eftirfarandi: T.G. hefur ráðið Jesper Hall sem þjálfara meistaraflokks T.G. og mun hann annast þjálfun þessa hóps. Hópurinn mun einnig fá aðgang að mjög góðum skákforritum auk þess sem bókasafn T.G. verður elft og haft eins gott og kostur er. Stutt verður við þennan hóp eins og hægt er. Einstaklingum í þessum hóp verða aðstoðaðir við þátttöku á mótum innanlands og utan. Komið verður á æfingarviðreignum þar sem hópurinn er skuldbundinn til að keppa í. Hópurinn mun greiða félagsgjöld sem eru hærri en gengur og gerist. Einstaklingar í hópnum skuldbinda sig til að keppa í ákveðnum fjölda móta með löngum skákum á ári auk Íslandsmóts skákfélaga. Ýmislegt gert til að efla liðsandann og verður hópurinn að vera mjög virkur í þátttöku þar. Ef menn uppfylla ekki þessi skilyrði verða þeir aðendurgreiða T.G. jafnháa upphæð og nemur félagsgjaldinu. Ýmsar fréttir munu tengjast þessum hópum og væntanlega mun bætast við teymið sem sér um þálfun hans. Skýrt skal tekið fram að T.G. mun áfram njóta krafta sterkra skákmanna eins og Dr. Kristjáns Guðmundssonar, Ásgeirs Þ. Árnasonar, Matthíasar Kjeld og fleiri. |
||||||||||||||||||||||||||||
| Starfsemi | ||||||||||||||||||||||||||||
| Stjórn | ||||||||||||||||||||||||||||
| Saga félagsins | ||||||||||||||||||||||||||||
| Meistaraflokksliðið | ||||||||||||||||||||||||||||
| Rós mánaðarins | ||||||||||||||||||||||||||||
| Vefir vikunnar | ||||||||||||||||||||||||||||
| Staðan | ||||||||||||||||||||||||||||
| TGingurinn | ||||||||||||||||||||||||||||
| Bikarmót Plúsferða | ||||||||||||||||||||||||||||
| Netkeppni TG og SA | ||||||||||||||||||||||||||||
| Fréttir | ||||||||||||||||||||||||||||
| Pistlahornið | ||||||||||||||||||||||||||||
| Aðrar síður | ||||||||||||||||||||||||||||