Fólkið


Hér er smá pistill um alla karakterana í Final Fantasy VII. Mjög áhugavert.



Nafn: Cloud Strife
Starf: Málaliði
Aldur: 21 árs
Vopn: Sverð
Hæð: 173 cm
Afmælisdagur: 19. ágúst
Fæðingarstaður: Nibelheim
Lýsing: Aðalpersóna Final Fantasy VII. Hann er fyrrverandi meðlimur SOLDIER, en verður málaliði sem tekur að sér hvaða starf sem er. Eftir að hafa verið ráðinn hjá AVALANCHE lendir hann í þvílíkri baráttu fyrir líf plánetunnar. Þetta mikilfenglega sverð hans getur skorið nánast allt í tvennt.


Nafn: Aeris Gainsborough
Starf: Blómasali
Aldur: 22 ára
Vopn: Stafur
Hæð: 163 cm
Afmælisdagur: 7. febrúar
Fæðingarstaður: ???
Lýsing: Ung, falleg og einhvern veginn dularfull. Aeris hitti Cloud þegar hún var að selja blóm á strætum Midgar. Hún ákvað að ganga í lið með Cloud seinna. Óvenjulegir hæfileikar hennar gera henni kleift að nota galdra en hún lítur út fyrir að hafa meiri áhuga á hinum djúpa ástarþríhyrning á milli hennar, Clouds og Tifu.


Nafn: Tifa Lockhart
Starf: Barþjónn (meðlimur AVALANCHE)
Aldur: 20
Vopn: Hanskar
Hæð: 167 cm
Afmælisdagur: 3. Maí
Fæðingarstaður: Nibelheim
Lýsing: Lífleg og jákvæð. Tifu tekst alltaf að kæta aðra þegar þeir eru leiðir. En ekki láta útlit hennar blekkja þig því hún getur útrýmt nánast hvaða óvin sem er með hnefunum. Hún er ein af aðalmeðlimum AVALANCHE. Hún og Cloud voru vinir í barnæsku og þó hún hafi sterkar tilfinningar gagnvart honum, þá myndi hún aldrei viðurkenna það.


Nafn: Barret Wallace
Starf: Yfirmaður AVALANCHE
Aldur: 35 ára
Vopn: Byssu-armur
Hæð: 197 cm
Afmælisdagur: 15. desember
Fæðingarstaður: Corel Village
Lýsing: Yfirmaður hins leynilega mótstöðubandalags AVALANCHE. Barret berst á móti hinu mikla fyrirtæki Shinra Inc. sem hefur einokað og ofnotað Mako orkuna, byggt sérstaka kjarnakljúfa (reactor) til að sjúga Mako orkuna úr plánetunni. Barret treystir á rudda styrk (brute strength) og byssu-arm hans til að bjarga sér. Konan hans lést í slysi fyrir nokkrum árum síðan en hann býr núna með dóttur sinni Marlene.


Nafn: Red XIII
Starf: Skepna
Aldur: 45 ára
Vopn: Klær og hausklæði
Hæð: 120 cm
Afmælisdagur: ???
Fæðingarstaður: Cosmo Canyon
Lýsing: Eins og nafn hans bendir til, þá er hann skepna með eldrauðan feld. En undir grimma útliti hans er gífurleg greind, meiri en nokkurs manns. Beittar klær hans gera hann góðan í bardögum nálægt óvin, en fyrir utan það, er ekki mikið vitað um hann. Það er ekki einu sinni öruggt að Red XIII sé alvöru nafn hans. Algjör ráðgáta.


Nafn: Cid Highwind
Starf: Flugmaður
Aldur: 32
Vopn: Spjót
Hæð: 178 cm
Afmælisdagur: 22. febrúar
Fæðingarstaður: ???
Lýsing: Cid er harðorða, hjartahlýr gamall flugmaður sem hefur ekki gleymt draumum sínum. Það er hvergi hægt að finna betri flugmann eða hafnsögumann. Hann trúir því að einn góðan veðurdag muni hann fljúga til enda alheimsins. Með handunna spjótinu sínu og kunnáttu hans á vélar, kastar hann sér í árás sama hvað varðar hættu.


Nafn: Yuffie Kisaragi
Starf: Materia þjófur, Ninja
Aldur: 16 ára
Vopn: Hnífur, bjúgverpill (boomerang) Origami (til að kasta)
Hæð: 160 cm
Afmælisdagur: 20. nóvember
Fæðingarstaður: Wutai
Lýsing: Þó þú myndir aldrei giska á það þegar þú litir á hana þá er Yuffie gallhörð ninja. Hún neyddi sig í hópinn bara til að fá "eitthvað sérstakt". Hún er "sneaky", hrokafull og soldið eigingjörn. En með hennar sterku kastvopnum og sérstökum eiginleikum, er enginn annar sem þú vildir hafa við hliðina á þér í bardaga.


Nafn: Cait Sith
Starf: Leikfangabrúða
Aldur: ???
Vopn: Gjallarhorn
Hæð: 100 cm
Afmælisdagur: ???
Fæðingarstaður: ???
Lýsing: Cait Sith ríður um á bakinu á risastórum Mog sem hann lífgaði við með göldrum. Með gjallarhorn í hendinni, er hann alltaf að hrópa skipanir og búa til undarlegar árásir. Þegar spilakassaárásin hans virkar, geta útlínur óvinsins litið út eins og dótakassi. Áhugamál hans er örlagalestur, en líkt persónuleika hans, er því ótreystandi.


Nafn: Vincent Valentine
Starf: Atvinnulaus
Aldur: 27 ára
Vopn: Byssa
Hæð: 184 cm
Afmælisdagur: 13. október
Fæðingarstaður: ???
Lýsing: Dularfullur maður, hraustur og stoltur með sig, þó að á sama tíma sé hann "dark" og dularfullur. Fortíð hans með Shinra Inc. er það sem lét hann ganga til liðs við Cloud og co. Innan í honum lúrir óttalegur kraftur.


Nafn: Sephiroth
Starf: Besti SOLDIER meðlimurinn
Aldur: 30 ára
Vopn: Masamune, risasverð
Hæð: 185 cm
Afmælisdagur: ???
Fæðingarstaður: ???
Lýsing: Jafnvel meðal góðu hópanna í SOLDIER, er Sephiroth þekktur sem sá besti. Fortíð hans er læst inni í trúnaðarskjölum í Shinra Inc. Risasverð hans, Masamune, sem aðeins hann getur ráðið við hefur gífurlegan eyðileggingarkraft. Sagt er að hann hafi horfið í bardaga fyrir mörgum árum og síðan hefur ekkert til hans spurst.

Til baka
©2004-2008 Jormundgand