Fortíð Clouds


Hafið þið einhvern tímann hugsað út í það hver fortíð Clouds er? Hér er mín kenning.


Ein af mestu ráðgátum Final Fantasy leikjanna er hver fortíð Clouds er. Er hann klón Sephiroths? Er hann mannlegur? Því er ekki auðsvarað. Til að svala forvitni ykkar þá hef ég sett hér kenningu sem nokkrir hafa sett fram og þá kenningu sem mér finnst líklegust. Þetta er SPOILER dauðans ef þú vilt ekki fá svarið auðveldlega.

*****SPOILER*****

Upphaflega yfirgaf Cloud Nibelheim til að joina SOLDIER. Hvað sem því líður þá var hann ekki nógu og góður og varð bara venjulegur meðlimur. Meðan á því stóð vingaðist hann við Zack, SOLDIER meðlim. Þeir voru ráðnir til að fara með Sephiroth, besta SOLDIER meðlimnum, til Nibelheim reactorsins. Cloud var of skömmustulegur til að viðurkenna misgengi sitt fyrir vinum sinum og vandamönnum. Hann stoppar þó til að tala við móður sina. Þegar þeir koma að reactornum, er það Cloud sem heldur sig úti og verndar Tifu. Inni finnur Sephiroth Jenovu og hann áttar sig á plottinu. Hann einangrar sig á bókasafni mansionsins, og endar það með því að hann rústar bænum í reiði sinni. Zack og Cloud elta hann að reactornum. Þegar þeir koma þá ræðst Sephiroth á Tifu. Zack eltir hann en Cloud ber Tifu burt, og heldur þannig gamla loforð sitt við Tifu. Zack og Sephiroth keppa, og Sephiroth rústar honum svo Zack meiðist alvarlega. Sephiroth fer með Masamune í annarri hendinni og sært höfuð Jenovu í hinni. Zack hvetur Cloud til að drepa Sephiroth svo Cloud tekur sverð Zacks og hleypur að Sephiroth. Þegar Cloud kemur að Sephiroth þá stingur Sephiroth Cloud. Sephiroth heldur að Cloud sé dáinn og heldur niður í bæ. Allt í einu grípur Cloud í sverð Sephiroths og hendir honum í vatnskennda Mako orkuna. (sem þýðir að sá Sephiroth sem þú hefur verið að elta í leiknum er aðeins klón gert af Hojo) Cloud fellur svo í jörðina. Nokkrir vísindamenn finna Cloud og Zack og reyna að græða þá aftur til lífs með því að láta þá í glasahólf í hólfum Jenovu. Cloud lífgast aftur við og einnig Zack. Meðan á því stóð voru Cloud og Zack tengdir saman, sem útskýrir afhverju Cloud hefur sumar minningar Zacks og sér sjálfan sig stundum í hlutverki Zacks. Það útskýrir einnig Mako augu hans. Þeir böðuðu hann í Mako orku svo það er ekki skrítið. Um síðir ná þeir að flýja í matartímanum. Þeir flýja Nibelheim og skakklappast til Midgar. Þar ákveða þeir að verða málaliðar. Þó finna Shinra verðir þá og skjóta Zack sem deyr samstundis. Cloud nær þó að lifa af, særður. Hann kemst þó til Midgar þar sem hann nær heilsu. 5 árum síðar finnur hann Tifu á lestarstöðinni. Hún mistekur hann fyrir Zack fyrst, enda eru þeir mjög líkir í útliti og gjörðum (útkoman eftir dvölina hjá vísindamönnunum). Hún sannfærir Cloud um að ganga til liðs við AVALANCHE, og þar hefst sagan. Sumir trúa því að Klón-Sephiroth sé í rauninni Zack. Ég trúi því þó ekki út af því að það eru engar sannanir fyrir því.

There you have it. Þetta er sannleikurinn um fortíð Clouds. Hann er mannlegur, var aldrei í SOLDIER og hann drap Sephiroth.

Til baka
©2004-2008 Jormundgand