(Stend á gati) "I stærðfræðitíma" |
Ég stend upp í stærðfræðitíma stynjandi og ennið er sveitt. Ég blíni í bókina mína og blátt áfram skil ekki neitt. Ég reyni að hugsa og reikna af reglunum man aðeins fátt og stafi á töfluna teikna en tölurnar ná engri átt. Að hugsa sér þvílíka heimsku horfin er skynsemin veik er hún í gáleysi og gleymsku gengin í blindingaleik Eða var hún í upphafi engin aðeins í höfðinu skarn Já líklega lausnin er fengin ég lifi sem vandræðabarn. |
Kvöldið fyrir þennan fræga stærðfræðitíma hafði pabbi verið að skemmta sér með frænda sínum er Gísli Þór heitir/hét. Hann bjóst við að verða tekinn upp í tíma næsta dag og bjó því til þessar vísur um kvöldið og ætlaði að lesa þær ef hann yrði tekinn upp. Haft mun þó eftir Gísla, að pabbi slapp við að vera tekinn upp, en skólafélagi hans náði í vísurnar og komu þeim til kennarans. |
"Rekinn úr tíma" (lag: Komdu og skoðaðu í kistuna mína) |
Ég sat eins og brúða og hlustaði hljóður við hlutum að læra um kynnstur þau öll sem Guðmundur kennir um grasanna gróður er gróa og blómgast um dali og fjöll "Að muna það allt saman ofvaxið er einfalda vesalings hausnum á mér" |
Ég setti í mig hörku og flengdi hann Fúsa því fólinu þessu ég skuldaði högg en þá var sem hefði í brennivínsbrúsa brátt komist eldur og kviknað í lögg. "Því nú varð í stofunni upnnám og allt eldurinn glæddist og logaði snjallt" |
Því Guðmundur reiddist og rak mig úr tíma ég reyndi að þrjóskast og setti upp stút Ég lýg um það engu hve löng var sú glíma hann lagði á mig hendur og fleygði mér út. "Nú er það skömmin, sem skipar mitt borð mikið skrambi fór illa mitt prúðmennskuorð" |
![]() |
![]() |
Jörundur Sveinsson |
En þá varð ég loksins á lífinu leiður ég leit á hann Fúsa og sneri mér við hann sat í leiðslu svo bústinn og breiður brjóstið var hart sem gat rofið þann frið. En haldið þið bara að Hitler og ég hræðumst að ganga hinn breiðari veg? |
Guðmundur Kjartansson, jarðfræðingur (löngu látinn) kenndi nátt- úrfræði í Flensborgl Hann var mikið prúðmenni og kom það stundum niður á aga í tíma. Jörundur hafði einnig orð á sér fyrir að vera prúð- menni mikið. Voru það því óvænt tíðindi, þegar Guðmundur rak Jörund úr tíma fyrir litlar sagir. Fúsi og Jðrundur höfðu kastað í hvorn anna bréfkúlum. Samdi pabbi þá þessar vísur: |
![]() |
HÉR Á NÆSTU SÍÐU GETIÐ ÞIÐ LESIÐ VÍSURNAR UM "GÚTTÓ OG EINA STUTTA UM KATTARBREIM Vísur eftir Jörund Sveinsson |
Tækifærsivísur eftir Jörund Sveinsson, þegar hann var við nám í Flensborg á árunum 1941-42. |