A very exciting litter of ours that we will keep a close eye on in the future!!! Int Ch Nord Ch S Uch N Uch IS Ch Veidinn´s Frv Valdís Víkingafrú with Óðinn. Valdís has a first prize in field trials in Iceland as well as prizes in field and combination trials in Norway. She was the Best dog of the trial at the "Storlipröven 2001" in Norway which is a very large competition. She has only had one litter and of the 8 living, 7 of them have been to field trials so far and all have prizes, as well as two have prizes in a combination trial. All the puppies that have been shown have 1.prize at shows and some champion quality as well as one male has a Cacib (International show champion point) and one male has a Reserve Cacib. Three of her puppies have had the honour of being awarded the Best dog of the trial and one was awarded this honour twice. Óðinn has a champion point at shows, was Best of Breed once and also 3rd Best in Gundog Group. His father is an American born dog (now moved back to USA) FC Radbach´s Silver Bullet that has many wins in hunting trials, his mother Icelandic born Gæfu Alma comes from Swedish lines. Óðinn is an extremely good hunting dog and is the youngest GSP in Iceland to ever get a 1.prize in the Open class at a field trial and recently made the history books again as the youngest dog (regardless of breed) to win 1.place in the Elite Class. He has also been the Best dog of the trial twice. Óðinn also has a 2.prize at a combination trial (water and land retrieve combined with field work). Both Valdís and Óðinn are free (A-excellent) for hip dysplasia. You can visit the puppies on our other Vorsteh site. Got sem við erum ótrúlega stolt af og gaman verður að fylgjast með í framtíðina. Valdís með Óðni. Bæði eru HD frí A. Bæði eru með 1.einkunn á sýningum og veiðiprófum!!! Sem gerir þetta Vorstehgot það fyrsta á Íslandi þar sem báðir foreldrar uppfylla þessar kröfur!!! Það er engin reynsla komin á Óðinn sem ræktunardýr en sá árangur sem hann hefur náð á sýningum og veiðiprófum lofar góðu. Hann hefur mætt á 6 próf og fengið einkunn á öllum prófum. Það þykir með eindæmum að ná 100% premíering þótt víðar væri leitað. Hann er með óleiðréttan* meðalveiðiáhuga uppá 5,5 í opnumflokki. Hann hefur tvisvar orðið besti hundur prófsins og er einnig með meistaraefni á sýningum. Hann er yngsti hundur burtséð frá tegund, til að ná 1.sæti í Keppnisflokki. Óðinn er einnig með 2.einkunn í Unghundaflokki á Alhliðaprófi. Valdís hefur verið ótrúlega flink að koma sér undan veiðiprófum með því að lóða akkúrat á "röngum" tíma. En hún er þrátt fyrir það með 1.einkunn í opnumflokki og hefur tekið þátt í Keppnisflokki. Valdís er ein af mjög fáum Vorsteh hundum í Evrópu sem hafa náð því að verða bæði Norðurlanda og Alþjóðlegur sýningameistari. Dísa er með 5,67 óleiðréttan meðalveiðiáhuga í opnumflokki. Sem ræktunardýr hefur Valdís hins vegar sannað sig sem um munar, hún hefur einungis gotið einu sinni en þeir hvolpar hafa gert ótrúlega góða hluti. Af 8 lifandi hafa 7 (Nero, Rúfus, Hetta, Quail, Terror, Doppa og Hera) mætt á veiðipróf og allir eru komnir með einkunn annað hvort í Unghunda- eða Opnumflokki. Terror er yngsta tík til að fá einkunn í Opnumflokki og hefur einu sinni orðið besta unghund prófsins. Doppa og Terror eru einnig komnar með einkunn í alhliðaprófi. Terror náði þann merka áfanga að verða fyrsti hundur til að ná 1.einkunn í Unghundaflokki á alhliðapróf á Íslandi. Einnig hafa 7 mætt á sýningu og allir með 1.einkunn alla vegina einu sinni. Hetta hefur fengið Meistarastig, Besta tík og 2 Besti hundur tegundar. Neró og Rúfus hafa einnig fengið Meistaraefni. Neró hefur tvisvar orðið besti unghundur prófsins og er komin með 1 Cacib á sýningu. Rúfus hefur einnig náð að taka með sér bikar sem besti unghundur prófsins og Vara Cacib á sýningu. Við fengum Heiðursverðlaun fyrir ræktunarhóp á sýningu í Júní 2004. Auðvitað þökkum við fyrst og fremst eigendum hvolpana fyrir þennan frábæra árangur! Þeir eru okkar bestu auglýsing!! Vonandi fundum við jafn gott fólk og fyrri got þar sem við teljum að um álíka efnilega hunda til veiði, veiðiprófa og sýninga sé að ræða. Endilega kíkið á myndir af hvolpunum á Vorsteh síðuna okkar! *Í Noregi má sleppa 2 lægstu tölunum (þurfa samt 3 minnst) til að reikna út meðalveiðiáhuga fyrir ræktunardýr sem má lægst vera 3,5 hjá karlhundum og 3,3 hjá tíkum, ef allar tölur eru gefnar upp þá er það "óleiðrétt" meðalveiðiáhugi. |
![]() |
![]() |
Valdís |
Óðinn |
![]() |