Dýr

Besti vinur mannsins.

 

Þú segir að hundar fari ekki til himna.  Ég segi þér; þeir voru þar á undan öllum öðrum.

-

Gerðu ekki þau mistök að koma fram við hundinn þinn eins og mann.  Þá mun hann koma fram við þig eins og hund.

-

Hundar eru heiðarlegir, Þeir gera ekkert af pólitískum ástæðum.

-

Ef hundur kemur ekki til þín þegar hann hefur skoðað þig með augunum þá ættir þú að fara heim og skoða samvisku þína.

-

Þú spyrð mig um vini mína.- Fjöllin, herra, sólsetrið og stór hundur sem faðir minn gaf mér.  Öll eru þau betri en mennirnir, þau skilja en segja ekki frá.

-

Það besta við hundinn er að þú getur hagað þér eins og fífl í návist hans.  Hann mun ekki aðeins þegja yfir því,  heldur taka þátt í fíflaganginum af heilum hug.

-

Eina leiðin til að kaupa sanna ást er að kaupa hvolp.

-

Það er lítið vit að hafa hund og þurfa að gelta sjálfur.

-

Varaðu þig á manni sem hundar og börn kunna ekki við.

-

Maður sem á góðan hund er aldrei án vina.

 

    

Heim