Ýmis spakmæli.
GERSEMAR:
Sá sem ekki þekkir ófrið mun aldrei skynja frið
Því meira sem við lærum, þess betur skynjum við hversu lítið við vitum
Því lengri tíma sem maðurinn eyðir í einsemd, þess
betur skilur hann aðra menn.
Hjartað
er eini kompásinn sem getur vísað þér leiðina að innri frið.
Láttu þér aldrei setta í hug að dýr tæki bæti upp þekkingarleysi þitt
Leti
er ekki annað en að hvíla sig áður en maður verður þreyttur.
Rétta
orðið getur verið einkar áhrifaríkt en þó hefur ekkert orð verið eins
áhrifaríkt og þögn á réttri stundu.
Maður
á ekki að miða við hvað aðrir gera best, heldur hvað maður gerir best sjálfur.
Það
tekur ekki nema örfár sekúntur að brjóta niður það traust sem tekur mörg
ár að byggja upp.
Tvær
manneskjur sem horfa á sama hlutinn sjá hann frá mismunandi sjónarhorni.
Ég
hef lært að kveðja alla með hlýlegum orðum. Þú veist aldrei hvenær þú
ert að kveðja þá í síðasta sinn.
Sá
sem síðast hlær er seinn að hugsa.
Eftir
góða máltíð getum við fyrirgefið öllum- meira segja ættingjunum.
Lúxus
er ekkert sem þú þarfnast, en nokkuð sem þú getur ekki verið án.
Ef
maðurinn finnur ekki frið í sjálfum sér er tilgangslaust fyrir hann að
leita hans annars staðar.
Velheppnaður
dagur endar í notalegum svefni.
Enginn
veit hvers hann er megnugur fyrr en hann hefur reynt.
Dæmdu
aldrei í reiði! Reiðin líður
hjá en dómurinn stendur eftir.
Sá sem vill breyta
lyndiseinkunn sinni, verður að taka á öllum sálarkröftum sínum, ef honum
á að takast það.
Til
þess að vera eitthvað og til þess að vera ætíð sjálfum sér samkvæmur
verða
menn að breyta í samræmi við orð sín.
Að
styggja ekki, er hið fyrsta stig til að þóknast.
Að
hrósa einhverjum fyrir það að vera góður, verður oft tilefni fyrir hann að
verða það.
Heldur
skulum við ofmeta en vanmeta hvort annað.
Allar
skyssur eru afsakanlegri en aðferðin sem fundin er til að leyna þeim.
Auveldara
er að hrósa ræðu prestsins í predikunarstólnum, en að breyta eftir henni.
List
er ekki einungis fólgin í því að geta grætt peninga, heldur líka að
kunna að fara með.
Sá
sem ætlar að bæta heiminn, á ekki að sá nýju fræi heldur hlúa að þeirri
jurt sem fyrir er.
Að
vera hylltur af öllum er hættulegt. Að
vera af engum mótmælt er verra.
Reynslan
er dýrmæt, verðið er yfirleitt of hátt.
Mikil
vinna drepur mann nú varla, en hvers vegna að taka áhættuna.
Ófriðurinn
er afkvæmi hrokans og hrokinn er barn auðlegðarinnar.
Ef
maðurinn finnur ekki frið í sjálfum sér er tilgangslaust fyrir hann að
leita hans annars staðar.
Allir
kvarta um, að þeir hafi lélegt minni, en enginn um lítið vit.
Gestir
eru ævinlega til ánægju – ef ekki þegar þeir koma þá þegar þeir fara.
Best
er að vera vitur næst því að vera elskaður.
Það er slæmt að vera hataður, en verra að vera fyrirlitinn.
Menningin
byrjar ekki með lestri og skrift, heldur með hamri og sög.
Eina
að ferðin til þess að bera sigur af hólmi í deilum við vekjaraklukkuna er
að gefast upp fyrir henni.
Sá
sem aldrei lætur tilviljun ráða neinu gerir fátt illa, enda næsta fátt
yfirleitt.
Sá
sem getur ekki fengið neinn áhuga á því sem er smátt, fær falskan áhuga
á því, sem er stórt.
Til
eru menn, sem hafa mátulega mikla skynsemi til að dylja með heimsku sína.
Frelsi
þýðir ábyrgð. Það er þess
vegna sem flestir eru hræddir við það.
Við
höfum öll næga krafta til að taka á okkur óhamingju náungans.
Flest
okkar hafa meira hugrekki en okkur sjálfum dettur í hug.
Mannskepnan
hefur ríka tilhneigingu til að skoða galla annarra gegnum stækkunargler í
stað þess að sota spegil til að koma auga á eigin galla.
Verstu
erfiðleikar manns byrja þegar hann getur gert það sem honum sýnist.
Menntun
er öflugasta vopnið sem þú getur notað til að breyta heiminum.
Fólk
sem megrar sig missir aldrei lystina á því að tala um það
![]() |
Heim | Meiri spakmæli | ![]() |