Stutt Lífshlaup


 Þegar ég var 10 ára fór ég í fyrsta sinn á hestbak hjá vinkonu hennar mömmu, Eveline, kona hans Sigurðar Haraldss. frá Kirkjubæ. 
Þegar Sigurður dó þá flutti Eveline í burtu.
Þá var ég send á reiðnámskeið að Vestra-Geldingarholti það var árið 1997, 
núna er ég búin að fara 5 sinnum þangað.
En áhugi minn af hestum var svo mikill að það dugði ekki að fara á reiðnámskeið einu sinni á ári, svo að mamma hringdi í nágranna okkar, sem áttu sjálf fullt af hestum og  
ég fékk að fara á hestbak hjá þeim, 
og varð þar líka næstu 6 árin ! 
( Þessir nágrannar eru Bergþóra og Halli )
Ég fékk svo hest gefins frá Bergþóru, 
hún gafst upp á honum því að hann var svo rosalega þver, hann hreyfði sig ekki úr spori hvað sem gert var en seinna byrjaði hann á því að slá til fólks.

Þá tókum við hann og söltuðum hann í tunnunni !
( Við slátruðum honum )

Minn fyrsti "keypti" hestur var Glanni. 
Hann var rosalega góður, persónubundinn hestur, hann lék sér allan daginn út í gerði með öðrum hestum og var 
alltaf sveittur þegar hann kom inn. 

Ég seldi hann út af ákveðnum ástæðum en veit ekki hvað hefur orðið af honum. 

Ég held að hann sé komin til himna núna og vona að honum líði mjög vel þar.

Ég átti einnig hest sem hét Glampi, 
en hann var frá Forsæti. 

Hann var 7.vetra ótaminn 
Hann fékk því miður ekki að lifa lengi því að hann var talin "vitlaus". 

En á vonandi gott líf með 
Glanna og Rjóma núna !

 


 
Svo fékk ég gefin hest frá Ása Páls.
Sæla, brúnn geldingur fæddur 92, 

Hann var rétt reiðfær þegar ég fekk hann, 
karkur og klárgengur. 
En er orðin besti reiðhesturinn minn núna !

Sæli kann ýmsar hestakúnstir : 
Að leggjast, setjast, heilsa og spænska sporið og honum finnst alltaf gaman að 
læra eitthvað nýtt.

 

Loksins, fékk ég minn eigin keppnis hest, Fönix, eða ég hélt það. 

Ég tamdi hann sumarið 2003 þegar ég var að vinna á Kirkjubæ, þá var hann 7 vetra. 

Þegar ég var búin að eiga hann í eitt ár fékk hann hófsperru og það komu beislisvandamál upp, 
hann var alltaf að rífa upp á sér munnvikin.

Núna er hann búin að fá 3 sinnum hófsperru og er ónýtur í fótunum ! Svo að draumurinn um eigin keppnishest fór í vaskinn og verður hann að fá sér nýja vini núna í haust sem heita/hétu
Rjómi, Glampi og Glanni...

 


 
Villimey, hana fékk ég gefins frá henni Bergþóru árið 2000 þegar hún var folald. 

Hún er undan Gyrði frá Svínhaga sem var keppnishesturinn minn í láni frá Bergþóru.

Ég tamdi hana haustið 2003. 
Hún er rosalega þæg í umgengni en er viljug og rúm klárhryssa með tölti. 

Sumarið 2004 var hún fyljuð af Forna frá Horni en gerðist það óhapp að hún missti folaldið sumarið á eftir. 

Núna er hún hjá Hjálmari frá Vatnsleysu og vonandi gengur allt vel.

Dynjandi frá Varmadal er undan rauðglófexta Þengli frá Kjarri og Spennu frá Varmadal. 

Ég keypti hann sem folald 2001 af Bergþóru og tamdi hann haustið 2004, 

Hann reyndist efnilegur og ef hann verður nógu góður í haust stefni ég með hann í Hólaskóla.

Eins og sjá má er ég ekki alltaf heppinn
með hestana mína sem ég hef átt !
En þannig kemur reynslan.

Til baka