Eitt sem ég hef aldrei skilið er það, af hverju krakkar
vita ekki af rétti sínum. Ég komst síðan
að því hvers vegna. Ríkisvaldið hefur ekki séð
til þess að dreifa þessari bók
sem kynnir réttindi barna.
Mismunun og ofsóknir
2. Grein
Börn og unglingar, sem verða fyrir ofsóknum eða misrétti vegna stöðu, athafna eða trúar sjálfra sín, foreldra sinna eða einhvers úr fjölskyldunni, eiga rétt á vernd.
Ábyrgð foreldra
5., 18., 26. og 27. grein
1. Foreldrar bera sameiginlega ábyrgð á að ala
upp barn sitt og koma því til þroska. Það sem
er barninu fyrir bestu skal vera þeim efst í huga. Foreldrar
eiga einnig að fræða barnið um réttindi sín
og kenna þeim að notfæra sér þau.
2. Ríkið á að virða og styðja foreldra og aðra sem bera ábyrgð á börnum og uppeldi þeirra.
4. Ríkið á líka að sjá til þess að stofnanir og þjónusta handa börnum og unglingum sé samræmi við sáttmálann.
Réttur til að lifa
6. Grein
Öll börn og unglingar öðlast við fæðingu rétt til lífs. Ríkið á að gera allt sem hægt er til að tryggja þeim réttinn til að lifa, vaxa og þroskast.
Réttur til eiginnafns og persónuleika
8. Grein
Enginn má svipta því sem auðkennir það
sem eintakling.
Réttu til frjálsar hugsunar, sannfæringar og trúar.
12., 13. og 14. grein
1. Börn og unglingar eiga rétt á að láta í ljós skoðun sína og tekið sé mark á þeim í málum sem varða þau sjálf.
2. Börn og unglingar eiga að hafa tjáningarfrelsi . Það felur í sér rétt til að leita að, taka við og miðla hvers kyns og hugmyndum. Þau eiga rétt á að tjá sig í tali, rituðu máli, mynd og söng eða á einhvern anna hátt, svo framarlega sem þau trufla ekki eða særa annað fólk.
3. Það á að virða skoðanir, samvisku og trú barna og unglinga.
Réttur til að vera í félögum
15. Grein
Börn og unglingar eiga rétt á að stofna og vera með í félögum og koma saman með friðsamlegum hætti svo fremi að það skerði ekki frelsi og réttindi annarra.
Réttur til einkalífs
16. Grein
1. Hvorki bön né unglingar mega sæta gerræðislegum eða ólöglegum afskiptum af einkalífi sínu eða fjölskyldu sinnar og heimili sínu. Bréf þeirra og dagbækur eru eign þeirra sjálfra. Aldrei má veitast að sæmd né mannorði nokkurs manns.
2. Börn og unglingar eiga rétt á lagalegri vernd fyrir slíkum afskiptum og árásum.
Misþyrmingar og ofbeldi
19., 34. og 39 grein.
Börn og unglingar, sem hafa sæmt vanvirðandi meðferð, ofbeldi eða pyndingum ellegar hafa lent í stríði, eiga rétt á allri hugsanlegri hjálp. Þau eiga rétt á að vera flutt í umhverfi þar sem hlynnt er að heilsu, sjálfsvirðingu og göfgi þeirra.
Fötlun og hjálpartæki
23. Grein
Börn og unglingar með andlega eða líkamlega fötlun eiga rétt á lífi sem stuðlar að sjálfstrausti þeirra og virkri þátttöku í samfélaginu.
Réttu allra til ókeypis skólagöngu
28. Grein
2. Námsagi í skólanum á að vera með þeim hætti að hann samræmist mannlegri reisn nemandanna og ákvæðum þessa sáttmála.
Skólastefnan
29. Grein
Skólamenntun skal stefna að því að:
a) Að gefa nemendum tækifæri til að þroskast á eigin forsendum og rækta hæfileika sína eins og hann hefur getu til.
b) Að kenna nemendum að bera virðingu fyrir mannréttindum og mannfrelsi og einnig að hafa í heiðri grundvallaratriði sáttmála Sameinuðu þjóðanna.
c) Að rækta með nemandanum virðingu fyrir hans eigin menningararfleið, tungu og gildismati og jafnframt fyrir öðrum menningarháttum sem eru ólíkir menningu hans sjálfs.
c) Að undirbúa nemandann til að lifa ábyrgu lífi í frjálsu þjóðfélgai í anda skilnings, friðar, umburðarlyndis, jafnréttis karla og kvenna og vináttu allra þjóða.
e) Að kenna nemandanum að vernda náttúruna og umhverfið.
Skaðlega vinna og arðrán
36. Grein
Ríkið á að vernda börn og unglinga fyrir hvers kyns arðráni og notkun sem getur skaðað þau á einhvern hátt.
42. Grein
1. Sáttmálann á að kynna og útskýra svo bæði börn, unglingar og fullorðnir skilji ákvæði hans.
2. Ríkið er skuldbundið til að upplýsa eins marga og mögulegt er um sáttmálann og gildi hans.