Hér eru lög um umboðsmann Barna hana Þórhildi Líndal. Annars ættir þú að kíkja á heimasíðu hennar eða www.barn.is
Lög um umboðsmann barna
1994 nr. 83 19. maí
1. gr.
Stofna skal embætti umboðsmanns
barna sem hafi það hlutverk að bæta hag barna og standa
vörð um hagsmuni, þarfir og
réttindi þeirra samkvæmt því sem nánar
segir í lögum þessum.
Með börnum er í lögum
þessum átt við einstaklinga allt að 18 ára
aldri.
2.
gr.
[Ráðherra skipar umboðsmann
barna til fimm ára í senn.]1) Skipa má umboðsmanninn
að nýju til fimm ára án auglýsingar en
eigi oftar nema sérstaklega standi á.
Umboðsmaður barna skal hafa lokið
háskólaprófi. Hafi umboðsmaður barna ekki
lokið embættisprófi í lögfræði skal
lögfræðingur starfa við embættið.
Kjaradómur ákveður laun
og starfskjör umboðsmanns barna. Umboðsmanni barna er óheimilt
að hafa með höndum önnur
launuð störf eða takast á hendur verkefni sem eigi
samrýmast starfi hans.
1)L. 83/1997, 11. gr.
3. gr.
Umboðsmaður barna skal vinna að
því að stjórnvöld, einstaklingar, félög
og önnur samtök einstaklinga og fyrirsvarsmenn
lögpersóna taki fullt tillit til réttinda, þarfa
og hagsmuna barna. Í starfi sínu skal umboðsmaður
barna setja fram ábendingar og
tillögur um úrbætur sem snerta hag barna á
öllum sviðum samfélagsins.
Umboðsmaður barna skal einkum:
a.hafa frumkvæði að stefnumarkandi umræðu í
samfélaginu um málefni barna,
b.koma á framfæri tillögum um úrbætur
á réttarreglum og fyrirmælum stjórnsýsluhafa
er varða börn sérstaklega,
c.stuðla að því að virtir verði þjóðréttarsamningar
sem varða réttindi og velferð barna og fullgiltir hafa verið
af Íslands hálfu
og enn fremur benda á að samningar
um þetta efni verði fullgiltir,
d.bregðast við með tiltækum úrræðum
telji hann að aðilar þeir, er greinir í upphafi 1.
mgr., hafi með athöfnum sínum eða
athafnaleysi brotið gegn réttindum,
þörfum og hagsmunum barna í samfélaginu,
e.stuðla að því að kynna fyrir almenningi
löggjöf og aðrar réttarreglur er varða börn
og ungmenni og beita sér fyrir því að
gerðar verði rannsóknir á
þessu sviði.
Telji umboðsmaður barna að ákvæði
d-liðar 2. mgr. kunni að hafa verið brotið skal hann beina
rökstuddri álitsgerð til
viðkomandi aðila ásamt tillögum um úrbætur,
eigi það við.
4. gr.
Öllum er heimilt að leita til umboðsmanns
barna með erindi sín.
Umboðsmaður barna tekur mál
til meðferðar að eigin frumkvæði eða eftir rökstuddum
ábendingum. Hann ákveður sjálfur
hvort ábending gefur tilefni til meðferðar af hans hálfu.
Umboðsmaður barna tekur ekki til meðferðar
ágreining milli einstaklinga, en honum ber að leiðbeina
þeim sem til hans leita
með slík mál um leiðir sem færar eru innan
stjórnsýslu og hjá dómstólum.
5. gr.
Stjórnvöldum er skylt þrátt
fyrir þagnarskyldu að veita umboðsmanni barna allar þær
upplýsingar sem að hans mati eru
nauðsynlegar til að hann geti sinnt hlutverki sínu.
Með sama hætti er einstaklingum, félögum og samtökum
einstaklinga skylt að
veita umboðsmanni barna allar upplýsingar sem að hans
mati eru nauðsynlegar til að hann geti sinnt hlutverki sínu
skv. d-lið 3.
gr. Umboðsmaður getur ekki krafist upplýsinga sem varða
öryggi ríkisins inn á við eða út á
við eða utanríkismál er leynt skulu
fara nema með leyfi ráðherra þess sem í
hlut á.
Umboðsmaður barna skal einnig, er
hann telur nauðsyn bera til, hafa óheftan aðgang að
öllum stofnunum sem vista börn eða
hafa afskipti af börnum á einn eða annan hátt
í starfsemi sinni, hvort sem þær eru reknar af opinberum
aðilum eða einstaklingum,
félögum eða öðrum samtökum einstaklinga.
Komi upp ágreiningur vegna ákvæða
1. og 2. mgr. er umboðsmanni barna heimilt að leita úrlausnar
dómstóla. Um
málsmeðferð fer eftir lögum um meðferð
einkamála.
6. gr.
Umboðsmanni barna ber að gæta
þagnarskyldu um þau atvik sem honum verða kunn í
starfi og leynt eiga að fara vegna
lögmætra almanna- eða einkahagsmuna. Sama gildir um
starfsmenn umboðsmanns barna. Þagnarskylda helst þótt
látið sé af
starfi. Að öðru leyti fer um þagnarskyldu umboðsmanns
barna og starfsmanna hans samkvæmt almennum reglum um starfsmenn
ríkisins.
7. gr.
Umboðsmaður barna ræður
sjálfur starfsmenn embættisins. Honum er einnig heimilt að
ráða sérfræðinga til að vinna að
einstökum verkefnum.
8. gr.
Forsætisráðuneytið skal
hafa eftirlit með fjárreiðum embættisins. Umboðsmaður
barna skal gefa forsætisráðherra árlega
skýrslu um starfsemi sína á liðnu almanaksári.
Skýrsluna skal prenta og birta opinberlega fyrir 1. september ár
hvert. Að öðru
leyti er umboðsmaður barna sjálfstæður og
óháður fyrirmælum framkvæmdarvalds.
Forsætisráðherra setur nánari
reglur um starfshætti umboðsmanns barna í reglugerð
að fengnum tillögum umboðsmanns.
9. gr.
Lög þessi öðlast gildi
1. janúar 1995.
Aftur á Aðalsíðu