Hér eru lög um umboðsmann Barna hana Þórhildi Líndal. Annars ættir þú að kíkja á heimasíðu hennar eða www.barn.is
Lög um umboðsmann barna
1994 nr. 83 19. maí
1. gr.
Stofna skal embætti umboðsmanns barna sem hafi það hlutverk
að bæta hag barna og standa vörð um hagsmuni, þarfir
og
réttindi þeirra samkvæmt því sem nánar
segir í lögum þessum.
Með börnum er í lögum þessum átt við
einstaklinga allt að 18 ára aldri.
2. gr.
[Ráðherra skipar umboðsmann barna til fimm ára í
senn.]1) Skipa má umboðsmanninn að nýju til fimm ára
án auglýsingar en
eigi oftar nema sérstaklega standi á.
Umboðsmaður barna skal hafa lokið háskólaprófi.
Hafi umboðsmaður barna ekki lokið embættisprófi
í lögfræði skal
lögfræðingur starfa við embættið.
Kjaradómur ákveður laun og starfskjör umboðsmanns
barna. Umboðsmanni barna er óheimilt að hafa með höndum
önnur
launuð störf eða takast á hendur verkefni sem eigi samrýmast
starfi hans.
1)L. 83/1997, 11. gr.
3. gr.
Umboðsmaður barna skal vinna að því að stjórnvöld,
einstaklingar, félög og önnur samtök einstaklinga og
fyrirsvarsmenn
lögpersóna taki fullt tillit til réttinda, þarfa
og hagsmuna barna. Í starfi sínu skal umboðsmaður barna
setja fram ábendingar og
tillögur um úrbætur sem snerta hag barna á öllum
sviðum samfélagsins.
Umboðsmaður barna skal einkum:
a.hafa frumkvæði að stefnumarkandi umræðu í
samfélaginu um málefni barna,
b.koma á framfæri tillögum um úrbætur á
réttarreglum og fyrirmælum stjórnsýsluhafa er
varða börn sérstaklega,
c.stuðla að því að virtir verði þjóðréttarsamningar
sem varða réttindi og velferð barna og fullgiltir hafa verið
af Íslands hálfu
og enn fremur benda á að samningar um þetta efni verði
fullgiltir,
d.bregðast við með tiltækum úrræðum telji
hann að aðilar þeir, er greinir í upphafi 1. mgr., hafi
með athöfnum sínum eða
athafnaleysi brotið gegn réttindum, þörfum og hagsmunum
barna í samfélaginu,
e.stuðla að því að kynna fyrir almenningi löggjöf
og aðrar réttarreglur er varða börn og ungmenni og beita
sér fyrir því að gerðar verði rannsóknir
á þessu sviði.
Telji umboðsmaður barna að ákvæði d-liðar
2. mgr. kunni að hafa verið brotið skal hann beina rökstuddri
álitsgerð til viðkomandi aðila ásamt tillögum
um úrbætur, eigi það við.
4. gr.
Öllum er heimilt að leita til umboðsmanns barna með erindi
sín.
Umboðsmaður barna tekur mál til meðferðar að eigin
frumkvæði eða eftir rökstuddum ábendingum. Hann
ákveður sjálfur
hvort ábending gefur tilefni til meðferðar af hans hálfu.
Umboðsmaður barna tekur ekki til meðferðar ágreining
milli einstaklinga, en honum ber að leiðbeina þeim sem til
hans leita
með slík mál um leiðir sem færar eru innan stjórnsýslu
og hjá dómstólum.
5. gr.
Stjórnvöldum er skylt þrátt fyrir þagnarskyldu
að veita umboðsmanni barna allar þær upplýsingar
sem að hans mati eru
nauðsynlegar til að hann geti sinnt hlutverki sínu. Með
sama hætti er einstaklingum, félögum og samtökum einstaklinga
skylt að
veita umboðsmanni barna allar upplýsingar sem að hans mati
eru nauðsynlegar til að hann geti sinnt hlutverki sínu skv.
d-lið 3. gr. Umboðsmaður getur ekki krafist upplýsinga
sem varða öryggi ríkisins inn á við eða út
á við eða utanríkismál er leynt skulu fara nema
með leyfi ráðherra þess sem í hlut á.
Umboðsmaður barna skal einnig, er hann telur nauðsyn bera til,
hafa óheftan aðgang að öllum stofnunum sem vista börn
eða
hafa afskipti af börnum á einn eða annan hátt í
starfsemi sinni, hvort sem þær eru reknar af opinberum aðilum
eða einstaklingum,
félögum eða öðrum samtökum einstaklinga.
Komi upp ágreiningur vegna ákvæða 1. og 2. mgr.
er umboðsmanni barna heimilt að leita úrlausnar dómstóla.
Um málsmeðferð fer eftir lögum um meðferð einkamála.
6. gr.
Umboðsmanni barna ber að gæta þagnarskyldu um þau
atvik sem honum verða kunn í starfi og leynt eiga að fara
vegna
lögmætra almanna- eða einkahagsmuna. Sama gildir um starfsmenn
umboðsmanns barna. Þagnarskylda helst þótt látið
sé af
starfi. Að öðru leyti fer um þagnarskyldu umboðsmanns
barna og starfsmanna hans samkvæmt almennum reglum um starfsmenn ríkisins.
7. gr.
Umboðsmaður barna ræður sjálfur starfsmenn
embættisins. Honum er einnig heimilt að ráða sérfræðinga
til að vinna að einstökum verkefnum.
8. gr.
Forsætisráðuneytið skal hafa eftirlit með fjárreiðum
embættisins. Umboðsmaður barna skal gefa forsætisráðherra
árlega
skýrslu um starfsemi sína á liðnu almanaksári.
Skýrsluna skal prenta og birta opinberlega fyrir 1. september ár
hvert. Að öðru
leyti er umboðsmaður barna sjálfstæður og óháður
fyrirmælum framkvæmdarvalds. Forsætisráðherra
setur nánari reglur um starfshætti umboðsmanns barna í
reglugerð að fengnum tillögum umboðsmanns.
9. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1995.
Aftur á Aðalsíðu