Fjögurra daga gönguferð í Júlí 2001: Landmannalaugar - Hrafntinnusker - Álftavatn - Emstrur - Þórsmörk

Heimasíðan er hér!Click here for English version!

Þessa gönguferð skipulagði ég sjálfur. Gönguleiðin er ein sú vinsælasta á landinu og yfir hásumarið getur verið erfitt að fá gistingu í skálum Ferðafélags Íslands nema farið sé með hópi eða bókað tímanlega. Rútuferðir eru tíðar yfir hásumarið til Landmannalauga og Þórsmerkur eftir að hálendisvegir opna. Tjaldstæðin á leiðinni eru sæmileg en þó síst í Hrafntinnuskeri. Veðrið fyrsta daginn var slæmt, sæmilegt á öðrum degi og ágætt tvo síðustu dagana.

Dagur 1: Landmannalaugar - Hrafntinnusker

Leiðin frá Landmannalaugum (600m) upp í Hrafntinnusker (1000m) er stutt en mjög litskrúðug. Vegna úrhellisrigningar þá eru því miður engar myndir frá þessum degi.

Dagur 2: Hrafntinnusker - Álftavatn

Í Hrafntinnuskeri er skáli FÍ. Tjaldstæðið í Hrafntinnuskeri er gróðurlaust sem ekki er skrítið því tiltölulega stutt er síðan það kom undan jökli. Fyrst gekk ég upp á topp Hrafntinnuskers og aðeins niður af því að suðvestanverðu. Þar gekk ég fram á snjógöng sem jarðhitinn hefur myndað en hinir eiginlegu íshellar eru norðar. Eins og nafnið Hrafntinnusker gefur til kynna þá ber mikið á biksvartri og gljáandi hrafntinnu. Síðar um daginn gekk ég frá tjaldstæðinu í Hrafntinnuskeri til Álftavatns. Útsýnið til suðurs frá Kaldaklofsfjöllum var glæsilegt.

Dagur 3: Álftavatn - Botnar í Emstrum

Við Álftavatn (550m) eru tveir skálar FÍ og gott tjaldstæði. Leiðin frá Álftavatni yfir í Emstrur lá fyrst yfir hálsana fyrir suðaustan Álftavatn. Auðvelt reyndist að vaða Bratthálskvísl og Bláfjallakvísl og Kaldaklofskvísl var farin á brú. Leiðin yfir sandana væri heldur tilbreytingarlaus ef ekki væru græn móbergsfjöll (Stórasúla, Hattafell, Stórkonufell...) sem skera sig frá svörtum sandinum. Innri-Emstruá rennur í gljúfri en hægt er að sjá móta fyrir miklu breiðari farvegi sem áin hefur myndað í jökulhlaupi. Skálar FÍ í Botnum í Emstrum (500m) eru við vatnsuppsprettur. Þar er pláss fyrir nokkur tjöld.

Dagur 4: Botnar í Emstrum - Þórsmörk

Fyrst gekk ég upp með Fremri-Emstruá þar til komið var að laglegri göngubrú. Síðan liggur leiðin niður með Fremri-Emstruá og síðar Markarfljóti. Þegar nær dró Þórsmörk þurfti að vaða litla jökulkvísl sem heitir Þröngá en síðan var gengið um skógarstíga þar til komið var niður í Húsadal í Þórsmörk (200m).