Heimasíðan er hér! | Click here for English version! |
![]() | Þessi skíðagönguferð var á vegum Ferðafélags Íslands. Farið var með fjallabílum inn fyrir Sigöldu inn að Bjallavaði. Það var ekki þrautalaust að komast síðasta spottann á bílunum því þeir voru sífellt að detta niður um þunnan ís ofan í tjarnir sem voru þar undir. Þaðan var gengið á skíðum til Landmannalauga. Annan daginn var farið í dagsferð inn í Jökulgil en síðasta daginn var gengið til baka til Bjallavaðs. Veðrið var ágætt fyrstu tvo dagana en versnaði aðfaranótt þriðja dagsins. Þriðji dagurinn byrjaði með slyddu en þegar komið var fram yfir hádegi var komið hið besta veður. |
Við stigum á skíðin við Bjallavað. Fyrst lá leiðin yfir hraun og sléttur þar til við fórum upp í Hnausaskarð. Síðan fórum við yfir sléttur þar sem undir leyndust á nokkrum stöðum tjarnir. Við gengum á skíðunum á ís yfir nokkrar tjarnir og það gekk yfirleitt nokkuð vel nema á einum stað þar sem mér (sem þyngsta þátttakandanum) tókst að fara tvisvar niður um ís í sömu tjörninni. Dýptin á vatninu var um metri en þegar ég datt ofan í tjörnina þá blotnaði ég upp undir hendur. Mér tókst með aðstoð að stíga upp úr í fyrra skiptið en í seinna skiptið var ég umkringdur mjög lélegum ís. Mér tókst þá eftir um 5 mínútur að skreiðast upp á ísinn með skíðin undir mér og fikra mig síðan 100-200m í land. Ekki varð mér meint af volkinu því að bæði var gott veður með sólskini og ég í góðum fötum. Áfram var gengið yfir hálsa þar til komið var upp á Frostastaðaháls. Þaðan var stutt ganga til Landmannalauga.
Þennan dag var farið í dagsferð inn í Jökulgil. Ég fór með hluta hópsins á skinnum upp brekkur vestan Jökulgils og renndum við okkur síðan niður í Jökulgil.
Dagurinn hófst með göngu í slyddu og litlu skyggni. Við fylgdum hópi jeppa hluta leiðarinnar meðan skyggnið var sem verst. Leiðin sem við fórum nú var talsvert vestar en fyrsta daginn og því engin hætta á fara niður um ís. Eftir því sem við fórum norðar þá batnaði veðrið þar til það var orðið léttskýjað. Í þetta sinn gengum við heldur lengra en til Bjallavaðs þar sem jepparnir sem voru að sækja okkur voru heldur seinir fyrir.