Dagsferðir um Suðursveit

Heimasíðan er hér!Click here for English version!

Þessi gönguferð var á vegum Ferðafélags Íslands. Gist var í svefnpokaplássi á Hrollaugsstöðum í Suðursveit en þaðan var farið í dagsferðir. Vegna óhapps annan daginn á leið í Innri-Veðurárdal þá þurfti að hætta við ferðina en aftur var reynt fjórða daginn og þá gekk allt vel.Veðrið var ágætt fyrsta og annan daginn en rigning þann þriðja. Veðrið var sæmilegt á fjórða degi.

Dagur 1: Fallastakkanöf

Farið var í stutta eftirmiðdagsgöngu upp á Fallastakkanöf en hún er samsett úr 90 metra háum stuðlabergssúlum.

Dagur 2 og 4: Innri-Veðurárdalur

Lagt var af stað í góðu veðri. Fyrst var vaðið yfir Fellsána og síðan gengið inn með Mjósundaá. Þegar komið var inn fyrir Hólmafjall þá opnaðist Gabbródalur með Fellsárjökli í botni. Þegar komið var inn í miðjan dalinn þá var gengið upp gil áleiðis upp á Eystra-Miðfell. Gilið reyndist torsóttara en það var árið áður vegna minni snjóalaga. Ofarlega í gilinu lenti ein í hópnum í vandræðum í lausri skriðu. Jóhannes fararstjóri brást skjótt til hjálpar og tók fallið af konunni en uppskar handleggsbrot. Hann tók því karlmannlega en vegna slyssins varð að sjálfsögðu að snúa við þennan dag.

Walter fararstjóri tók aðra atrennu með hluta hópsins inn í Innri-Veðurárdal. Í þetta sinn fórum við upp á Eystra-Miðfell austar og reyndist það góð leið. Leiðin lá í slakka í Eystra-Miðfelli þar til gengið var upp á jökulfönn norðan við Hvítingsdalstind. Eftir um hálftíma gang þá opnaðist Innri-Veðurárdalur fyrir okkur. Við gengum síðan í norður í bug upp fyrir sprungusvæði í jöklinum til að komast niður í svokallaða Sveinatungu. Á leiðinni tókst mér að setja annan fótinn niður um snjó og niður í jökulsprungu. Hinn fóturinn hafði gott hald og því var engin hætta. Sprungan sem ég fór niður um sást sem hársbreið sprunga í snjónum en undir var um metra breið og a.m.k. 10m djúp jökulsprunga. Þegar komið var niður í Sveinatungu þá sáust andstæðurnar í grænni Mávatorfunni, hrikalegum líparítfjöllunum, jökullóninu og jöklinum fjær. Þetta er einn afskekktasti staður á Íslandi og í mínum augum einn sá fallegasti. Á leiðinni heim var gengið niður með Fellsá og laglegur foss við mynni Gabbródals skoðaður.

Dagur 3: Kálfafellsdalur

Þennan dag rigndi nokkuð með köflum einkum fyrri hluta dagsins. Gengið var frá Innstabotnsgili og inn í botn Kálfafellsdals. Á leiðinni eru mörg hrikaleg gil í norðaustanverðum dalnum en engar stórar ár eru þó á leiðinni. Inni í dalbotninum fellur Brókarjökull niður á láglendi.