Það er spenna í lofti hér í ljónagryfjunni hjá TR. Ljónin í TR b eiga í höggi við S. Reykjanesbæjar sem hefur komið mjög á óvart og er sannkallað spútnik lið keppninnar. Þeir hafa þegar slegið út tvö fyrstu deildarlið og nú er spurningin hvort að ljónin verði þriðja höfuðleðrið í belti þeirra. Þeir eru einnig í harðri baráttu við SA b og Akreanes um að komast upp í fyrstu deild.
Liðskipan liðanna kemur eftir smátíma og síðan verður uppfært jafnt og þétt.

Keppnin er hafinn og það er ljóst að telft er til vinnings með sókndjörfum hætti á öllum borðum.  Hvergi er nein stöðubarátta í gangi heldur sókn og ekkert nema sókn.

Lið ljónanna sem eru hér á heimavelli í sinni björtu ljónagryfju er skipað eftirfarandi ljónum:

1. Jón V. Gunnarsson 2. Arnar Gunnarsson 3. Magnús Örn Úlfarsson 4. Bergsteinn Einarsson 5. Sigurður P. Steindórsson 6. Ingvar Þ. Jóhannesson

Spútniklið S: Reykjanesbæjar eru skipað eftirfarandi leikmönnum:

1. Helgi Jónatansson 2. Haukur Bergmann 3. Sigurður Sverrisson 4. Pálmar Breiðfjörð 5. Pétur Sævarsson 6. Patrick Svansson.

Skákirnar eru allar í fullum gangi en komnar betri línur í þær.

Jón Viktor er kominn með betra á móti Helga og farinn að horfa á Kónginn.  Magnús og Sigurður  eru að tefla stórskemmtilega skák og er hún í jafnvægi sem stendur. Arnar og Haukur eru enn á byrjunarstigi en tefla frekar óhefðbundið. Ekkert nýtt við það þegar Arnar teflir. Pálmar sækir á Bergstein (hvenær sækir Pálmar ekki!) en staðan er traust hjá Bergsteini. Verður án efa spennandi. Skák Sigurðar Páls og Péturs er í járnum en Ingvar er með örlítið betra á móti Patricki. Hins vegar eru ljónin með áberandi betri tíma á öllum borðum.

Það er farið að síga á seinni hlutann.  Jón Viktor er  kominn með mjög sterkt Biskupapar sem lítur vel út en ekkert ljóst.  Haukur er með slæman tíma á móti Arnari en staðan er jöfn. Pálmar hefur bætt í sóknina en Bergsteinn hefur trausta vörn gegn henni. Staðan í jafnvægi. Magnús er með verri tíma í skemmtilegri skák á móti Sigurði. Sigurður Páll er einnig kominn með verri tíma og staðan er í jafnvægi þar. Ingvar er með heldur betra en mun betri tíma.

Hlutirnir eru orðnir ljónunum hagstæðir.
Jón Viktor er með unnið sem og Ingvar á móti Patrick. Sigurður Páll er kominn með undirtökin eins og Magnús á móti Sigurði. Bergsteinn er farinn að vígbúast á móti Pálmari svo að þetta gæti staðið betur fyrir spútniklið Reykjanesbæjar.

Jón Viktor er búinn að vinna. Arnar, Magnús og Ingvar eru með mun betra/unnið. Mjög athyglisverð staða er hjá Sigurði Páli og alls ekki ljóst hvernig hún fer. Einnig er skák Pálmars og Bergsteins mjög skemmtileg.

Arnar, Magnús og Ingvar eru búnir að vinna. Þeir tvær sem eftir eru geta farið hvernig sem er.

Já, þetta er ljónagryfja í lagi. Ljónin bíta! Staðan í hálfleik er 6 - 0 fyrir ljónunum og þeim nægir eitt jafntefli í seinni hálfleik. Líklegt verður að teljast að þeim takist það. Nú gerum við 10 mínúta hlé á lýsingunni og komum síðan inn aftur. Rétt er að minna á beina lýsingu á morgun frá fyrsta skákviðburðnum á Lengjunni, viðureign Hellis og Hróksins a.

Seinni umferðin er hafin og nú er það allt eða ekkert fyrir Reykjanesbæ. 6 - 0 er það eina sem gildir. Pálmar beitti albínóanum á móti Bergsteini en annars er Noræna vörnin vinsæl. Bæði Jón Viktor og Patrickur hafa gripið til þess bragðs.

Jón Viktor er búinn að vinna kall fyrir ekkert á móti Helga. Skák Arnars og Hauks er í jafnvægi. Magnús er í miklum skotgrafahernaði á móti Sigurði en Pálmar er að tefla Albínóann mjög frumlega gegn Bergsteini. Hins vegar eru skákir Sigurðar Páls og Péturs annars vegar og Ingvars og Patricks að komast út úr byrjuninni.

Jón Viktor er með unnið  á móti Helga. Staða Arnars og Hauks er jöfn. Peðastaða Arnars er losaraleg en á móti er hann með virkari menn. Staðan hjá Magnúsi og Sigurði er í jafnvægi og varla komin úr byrjuninni. Pálmar var að misstíga sig í byrjuninni á móti Bergsteini en heilmikið eftir þar engu að síður. Pétur er full rólegur í tíðinni á móti Sigurði Páli með að leggjast í sókn. Staðan hefur boðið upp á það og ekkert annað en hann er ekki enn lagður af stað sem hefur þýtt það að Sigurður hefur verið að bæta jafnt og þétt við. Ef Pétur fer ekki að láta vaða mun Sigurður væntanlega vinna. Ingvar og Patrickur með eina af þessum jafnvægisskákum og allt opið þar.

Jón Viktor og Helgi eru enn að tafli en Jón Viktor er með gjörunnið. Jöfn staða er hjá Arnari og sömu formerki og áðan. Heldur hefur staða Arnars þó styrkts. Magnús er með örlítið betra á Sigurð. Hins vegar hefur Bergsteinn eitthvað unnið ver úr þessu heldur en umsjónamanni lýsingarinnar fannst hann geta og staðan hjá honum og Pálmari er jöfn. Pétur er loksins farinn í sókn á móti Sigurði Páli en staða Sigurðar Páls lítur þó mun trasutar út. Ingavr er hins vegar peði yfir í þægilegri stöðu á móti Patricki.

Nú er seinni umferðin langt komin. Jón Viktor er með mann á móti peði eins og áður en er búinn að þvinga fram Drottningaruppskipti. Haukur er hins vegar búinn að bæta við jafnt og þétt á móti Arnari þó enn sé staðan jöfn. Magnús er með mun betra á móti Sigurði . Bergsteinn er kominn með örlítið betra á móti Pálmari en staðan hjá Sigurði Páli og Pétri er mjög skemmtileg. Ingvar bætir hins vegar jafnt og þétt við á móti Patricki.

TRingar eru komnir áfram. Magnús var að vinna öruggan sigur á móti Sigurði. Jón Viktor er að vinna peðið sem að Helgi hafði á móti manningum. Haukur er með mun verri tíma á móti Arnari.  Bergsteinn er kominn með betra, bætir jafnt og þétt við og tæknin er farinn að skila sér. Tæknin er einnig að skila mun betri stöðu hjá Ingvari auk þess sem hann er peði yfir. Pétur er kominn með fína stöðu og skemmtilega á móti Sigurði en hún getur farið hvernig sem er.

Þá eru allar skákir búnar. Sigurður Páll tapaði en önnur ljón unnu. Sem sagt, 11 - 1 fyrir TR b.
Á morgun munum við síðan lýsa beint leik Hellis og Hróksins a en sá leikur er á Lengjunni.