Hér í Hellisheimilinu er að magnast spenna fyrir sögulegan viðburð. Fyrsta viðureign frá skák á Lengjunni er að hefjast. Viðureign Hellis og Hróksins a. Von er á liðskipun eftir fáeinar mínútur en hún fæst ekki gefinn upp eins og er!

Þetta er síðasta viðureignin í 8 liða úrslitum Bikarmóts Plúsferða. Þau lið sem eru kominn í undanúrslit eru ljónin úr TR b, pöndurnar úr SH og jaxlarnir úr TR a. Næstkomandi miðvikudag verður svo dregið í beinni útsendingu á Rás 2 kl. 11.30 í undanúrslit.

Jæja, nú nötra hlutirnir. Eftir kröfur um nýjar klukkur og aðra taugaspennu að þá er keppnin hafinn. Lið Hellis er skipað eftirfarandi:
Hannes Hlífar Stefánsson, Helgi Áss Grétarsson, Kristján Eðvarsson, Bragi Halldórsson, Ingvar 'Asmundsson og Björn Þorfinnsson.
Lið Hróksins er skipað eftirfarandi mönnum:
Stefán Kristjánsson, Róbert Harðarson, Tómas Björnsson, Einar K. Einarsson, Kjartan Guðmundsson, Birgir Berndsen.

Hannes kom Stefáni mjög á óvart og lék hinni skemmtilegu vörn Caro Kann gegn e4 Stefáns.  Annars  eru skákirnar að komast af stað og við reynum að koma inn eins ört og hægt er.

Stefán er að byggja upp skemmtilega sóknarstöðu gegn Hannesi og verður án efa skemmtileg skák. Helgi Áss og Róbert eru að tefla Benóný. Kristján og Tómas eru í byrjunni en Bragi Halldórs er með betra gegn Einari K. Ingvar og Kjartan eru enn í byrjuninni en Björn er búinn að vinna peð gegn Birgi. Það er þung undiralda hér og mikil spenna í lofti. Það verður án efa mikil barátta í kvöld.

Stefán er með vænlega stöðu gegn Hannesi. Það er allt í járnum hjá Helga Áss og Róbert. Lítið hefur gerst hjá Kristjáni og Tómasi sem og Ingvari og Kjartani. Rétt að skríða út úr byrjuninni. Hins vegar er Bragi búinn að vinna mann á móti Einari.

'Eg var full fljótur á mér með Braga Halldórss og Einar K. Einar er með peð upp í skiptamuninn og sú mikið eftir í þeirri skák. Skák Hannesar og Stefáns er mjög skemmtileg.  Róbert er farinn í sókn með svörtu á móti Helga Áss og Kjartan er með örlítið þægilegri stöðu á móti Ingvari. Kristján og Tómas eru að byggja upp sínar stöður en Birgir er með spil fyrir færi. Eru hjörtu tippara farinn að slá hraðar?

Ákveðnir veikleikar eru að myndast á drottningarvæng hjá Stefáni. Róbert er með verri tíma en skemmtilega sóknarstöðu. Tómas er með þægilegra á móti Kristjáni. Bragi er með heldur betra á móti Einari en langt frá því að vera búið. Undiraldan er mikil hjá Ingvari og Kjartani. Birgir er að reyna að grugga í stöðunni á móti Birni og mikið eftir þar þó peð Björns geti vegið þungt. Eigum við ekki að segja að staðan á borðunum sé 3 1/2 - 2 1/2 Helli í vil eins og er. 

Stefán og Hannes jafntefli eftir riddaraendatafl. Róbert og Helgi Áss eru í skemmtilegri skák. Tómas er kominn með undirtökin á móti Kristjáni sem og Kjartan á móti Ingvari. Bragi er búinn að vinna peð og hefur skiptamun yfir á móti Einari. Birgir er kominn með verri tíma núna. Staða á borðum nú gætum við sagt að sé 3 - 3.

Róbert á innan við 5 mínútur eftir á móti 8 hjá Helga en Róbert er með sterka tvofalda Hróka á opinni g línu. Varnir Helga þó sterkar. Kristján er með peð yfir en staða Tómasar lítur vel út. Einar er að snúa stöðunni á móti Braga. Allt komið í loft upp þar. Svipað er hjá Ingvari og Kjartani og var áðan. Birgir er hins vegar með mun verri tíma en Björn en hefur skapað sér fleiri færi. Það er allt að verða vitlaust.

Tómas vann Kristján svo Hrókurinn er kominn yfir 1 1/2 - 1/2.  Helgi er með trausta vörn á móti Róbert. Verður mikið tímahrak. Einar var að fórna og er núna Hrók undir en fyrir fín færi.  Eru ovæntir hlutir að gerast? Samkvæmt Lengjunni að þá er 2,35 stuðlarnir fyrir Hrókinn en 1,75 hjá Helli. 4,00 á jafntefli.

Björn var að vinna Birgi og staðan er 1,5 - 1,5.

Það er allt að verða vitlaust!!!!!!!!!!!!!!! Gífurlegt tímahrak hjá Helga og Róbert. Róbert með Drottningnu á móti tveimur hrókum og riddara. Bragi er að leysa vandamálin á móti Einari og kominn með unnið en brjálæðistlegt tímahrak hjá Kjartani og Ingvari.

Róbert tapaði fyrir Helga Áss. Einari tapaði í skemmtilegri skák á moti Braga Halldórss. Bragi ´étt náði að máta áður en hann féll. Ingvar vann Kjartan nokkuð örugglega í restina. Staðan í hálfleik 4 1/2 - 1 1/2 en svo sannarlega langt frá því að vera búið.

Það er hálfleikur og staðan 4 1/2 - 1 1/2. Liðin hafa ýmsa möguleika. 'A leikmannalista Hellis eru Helgi Ólafsson, Jón L. 'Arnason, Davíð Kjartanssonog Davíð Ólafsson. Hjá Hróknum er svo Hrafn Jökulsson einnig á lista. Við komum inn eftir um það bil 8 mínútur þegar seinni hálfleikur hefst.

Seinni hálfleikurinn er hafinn og liðin stilla upp óbreyttum liðum.

Hannes og Stefán eru mjög óvænt að tefla franska vörn að hætti húsins með K á f8. Róbert og Helgi Áss eru í byrjuninni en Kristján er kominn með undirtökin á móti Tómasi. Bragi og Einar K eru að tefla þunga skák. Ingvar er kominn með betra en Björn og Birgir eru í byrjuninni.
Það er með mikilli ánægju sem að við getum látið vita nú þegar að það stefnir í metáhorfendafjölda hvað varðar beinar útsendingar á heimasíðu TG.

Stefán hefur væntanlega misstigið sig á móti Hannesi sem er komið með betri stöðu og líklega unnið. Róbert er að stilla upp í sókn á moti Helga Áss. Kristján er í sókn á móti Tómasi, mjög ákveðinn. Staðan var þung hjá Braga og Einari áðan og ekki er hún orðin léttari! Ingvar er með betra bæði á tíma og borði á móti Kjartani. Það er enn bara staða hjá Birni og Birgi.


Hannes er að bæta stöðuna jafnt og þétt. Róbert er búinn að fórna manni á móti Helga fyrir sókn. Kristján sækir á móti Tómasi og er búinn að leggja mikið undir. Ingvar er með betra. Björn er kominn með Hrók og þrjú peð á móti tveimur mönnum. Hann er með heldur betra. Þetta er að detta Hellismegin og heldur meiri barátta var í fyrr umferðinni. eins og staðan er nú en hins vegar er mikið eftir.


Hannes hefur enn bætt stöðuna á móti Stefáni. Róbert getur nú fengið manninn til baka og staðan er skemmtileg. Varnirnar hjá Tómasi eru orðnar betri og mikil barátta hjá honum og Kristjáni. Einar er skiptamun yfir á móti Braga. Kjartan er búinn að bæta stöðuna verulega á moti Ingvari en tíminn er slæmur. Björn er búinn að vinna Birgi svo staðan er orðinn 5 1/2 - 1 1 1/2.

Það er mikil seigla í Hróknum. Stefán  berst gífurlega á móti Hannesi og er búinn að sýna mikla þrautseigju. Hannes var hins vegar að vinna. Róbert er með örlítið betra. Tómas er að sækja og er ekki með síðra. Kjartan hefur varist vel og er kominn í jafnteflislegt Hróksendatafl. Bragi og Einar eru með drottningu og hrók og jafnteflislegt þar. Varðandi sméin að þá hefur komist tölvuvírusar að nafni Ingvar Þ. Jóhannesson en það hefur nú verið hreinsað enda Glefsir með rrroooooooooaaaaaaaaaaaaaaarrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr.

Einar og Bragi voru að semja. Ingvar er með betra á Kjartan. Helgi er með heldur betra á móti Róbert. Mann á móti þremur peðum og betri stöðu. Þung skák hjá Kristjáni og Tómasi.
Staðan 7 - 2 fyrir Helli.

Ingvar vann. Helgi vann og Kristján vann og Hellir þar með 10 -2. Minni á dráttinn í beinni á Rás 2 á miðvikudag.