Málshættir E
f engin eyðimörk
væri til fyndist engin graseyja.
Ef stendur í hverri lögbók.
Eftir höfðinu dansa
limirnir.
Eftir
vinnunni fara verkalaunin.
Eftirvæntingin er stækkunargler morgundagsins.
Ef
þú leitar eftir hjálparhönd, mundu þá eftir þinni
Eigi er sopið þó í ausuna sé komið.
Eigi
fellur tré við hið fyrsta högg.
Eigi
legg ég slíkt langt upp.
Eigi
skal letja góðan gest, er ganga vill.
Eigi
skyldi boga of langt toga.
Ei
leyna augu, ef ann kona manni.
Einn
er vegur allra inn í lífið og söm er leiðin út
Einn óréttur býður öðrum heim
Einn er litur allra kúa um nætur.
Einnig í ríki hugmyndanna situr tæiskan að völdum.
Eins dauði annars brauð.
Eins fer hún Grýla með öll börnin sín.
Eins skal aftur sá, þótt uppskeran hafi verið rýr.
Eitt er að gera, annað að vilja.
Eitt
hik gerir margt strik.
Eitthvað
mistekst þá margt er haft í takinu.
kkert er ómögulegt
fyrir þann sem veit ekki hvað hann talar um.
Ekkert er svo vel gert að ekki verði að því fundið.
Ekki er allt gull sem glóir.
Ekki er allt vakurt þó riðið sé
Ekki
er ást sú auðslitin , er ungir bundu.
Ekki er fjandinn frændrækinn.
Ekki
er fugl í höndum, þó fljúgi með ströndum.
Ekki
er gaman nema gott sé.
Ekki
er happi að hrósa fyrr en hlotið er
Ekki
er hundum helgidóm að bjóða.
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið.
Ekki er sjórinn sekur, þótt syndi ei allir fuglar.
Ekki er svo fögur eik að hún fölni ekki um síðir.
Ekki
er sú betri músin er læðist en hin er stekkur.
Ekki
er það einum bót, þó annar sé verri.
Ekki er þar autt hnoðrinn húkir.
Ekki eru allar ástar í andliti fólgnar.
Ekki eru allar ferðir til fjár
Ekki
eru allar syndir guði að kenna.
Ekki
eru jötnar meybarna meðfæri.
Ekki eru ætíð jól.
Ekki
fer ætíð betur, þá breytt er.
Ekki fretar mús eins og hestur þau rauf rifni.
Ekki
gerir einn þröstur vor.
Ekki
ná allir fótsporum feðra.
Ekki má benda bogann um of.
Ekki
missir sá, sem fyrstur fær.
Ekki
mun vitur um óvíst þrátta.
Ekki
neytir ljóss, þegar lýsir sól.
Ekki
skyldi Baldri böls biðja.
Ekki vantar það sem fengið er.
Ekki var Róm byggð á einum degi
Ekki
veldur sá er varar, þótt verr fari.
Ekki
verður bókvitið í askana látið
Ekki
verður þú helgur þó aðrir syndgi.
Ekki þarf nema einn gikk í hverri veiðiferð.
Eldurinn
brennir líkamann, en hatrið sálina.
Eldmóðurinn
kemur hjólum hugmyndaflugsins í gang
Elskan
dregur elsku að sér.
ngin auðlegð er til
nema lífið sjálft.
Engin dyggð er eins minnislaus og þakklátsemin
Engin er eik án kvista.
Engin
kona verður skækja af eins manns völdum.
Enginn
deyr oftar er einu sinni.
Enginn eignast krónuna nema hirða eyrinn.
Enginn
er allheimskur ef þegja má.
Enginn er annars bróðir í leik
Enginn
er hærri þó hann hreykji sér.
Enginn er of góður sjálfum sér að þjóna.
Enginn er réttláttur meðan hann er reiður.
Enginn er í umferð einn.
Enginn
dettur lengra en til jarðar.
Enginn
eignast krónuna nema hann hirði eyrinn.
Enginn
fitnar af fögrum orðum.
Enginn gefur sér gæfuna sjálfur.
Enginn getur haldið þér niðri nema þú sjálfur.
Enginn
hefur afl við Ægir.
Enginn
maður er alltaf vitur.
Enginn maður er svo mælskur, að honum segist vel nema hugur fylgi máli.
Enginn kannar dýpt fljóts með báðum fótum.
Enginn kann úr annars hálsi orð að kjósa.
Enginn
ræður auðnu sinni sjálfur.
Enginn skyldi einn í sorgum sitja.
Enginn skyldi spyrja fiskinn um það, sem
gerist á landi.
Enginn spegill er betri en gamall vinur
Enginn
verður óbarinn biskup.
Enginn
veit hvað átt hefur , fyrr en misst hefur.
Enginn veit hvers hann er megnugur fyrr en hann hefur reynt
Engum er allt léð né alls varnað.
Engum
er bót í annars böli.
Engum
er lýti að því sem allir hafa.
Engu
spillir hægðin
Erja má jörð er ávökst skal bera.
Eyðist
það er af er tekið.
92 málhættir