Copyright © 2001-2003 by Björgólfur Ingason. All rights reserved. |
Sjálfrennireiðarsíðan mín. |
Ég er bara með þessum ósköpum gerður að fá hinar ýmsu "dellur" enda óttalegur dellukall. En eins og flestir karlkyns Homo Sapiens þá hef ég mikinn áhuga á farartækjum ýmiskonar. Fyrsta vélknúna farartækið sem ég átti var VW Bjalla árgerð 1975. S.k. ameríkubjalla, með sveigðri framrúðu og McPherson fjöðrun að framan (en ekki vindufjöðrunina frægu). Dundaði mér nokkuð við þennan bíl og gerði hann upp, gaf hann síðan í varahluti. Áhuginn á sjálfrennireiðunum minnkaði þó aldrei heldur jókst til muna. Ég var sérstaklega spenntur fyrir 4x4 farartækjum. Ég heyrði einu sinni sagt um jeppadelluna að hún heltæki mann og síðan bara versnaði hún. Ég get svosem tekið undir það. Næst eignaðist ég orginalinn, Jeep CJ-5 árgerð 1966. Breyttur jeppi, en ekkert sérstaklega vel breyttur. Vélin chevy v8 307cid, skemmtilegasti rokkur, orginal 3ja gíra kassi (1; vinstri og fram, 2; hægri og fram, 3; hægri og aftur, bakk; vinstri og aftur) ekki ósjaldan sem brakaði aðeins í honum þegar skipt var. Orginal (held ég) hásingar, Dana 27 að framan 44 að aftan og spicer 18 millikassi. Braut innvolsið í millikassanum einu sinni þegar ég var að leika mér í torfærum. Reif hann í sundur og sá að gleymst hafði að setja splitti við eitt tannhjólið og því fór sem fór í átökunum. En þessi bíll var á 33tommu dekkjum og var nokkuð drjúgur sem leikfang. Hann hafði svosem sínar kenjar þessi bíll, átti það til að krækja skiptistöngunum saman og þá fórstu ekkert nema skríða fyrst undir hann og kippa honum úr gír (maður var alltaf með mottu með sér í þetta brúk). Konan mín segir alltaf að hún hafi vorkennt mér svo mikið fyrir að vera að skröltast um á svona skrapatóli og því viljað hugga mig. En þetta er náttúrulega helber vitleysa, þetta var magnaður babe-magnet (þótt hann hafi bara dugað á hana Jenný mína ;-) Síðan tóku við nokkur ár meðan við vorum að koma yfir okkur húsnæði og standa í ungbarnamálum. Jeppinn grotnaði niður því ég gat ekki komið honum inn í hús og var á endanum seldur. Keyrði næstu ár um á Fiestu og síðan á Skoda, ágætisbílar en á engan hátt eftirminnilegir. Svo kom að því að við slógum til og keyptum okkur gamlan og góðan japana. Nissan Pathfinder árgerð 1987, beinskiptur 5gíra, v6 3ja lítra vél. Þessum grip ökum við um á í dag. Þetta er allt önnur útgerð en með Willan gamla. Hægt að keyra gripinn án mikilla óþæginda og ferðast um á honum. Höfum enda notað okkur það óspart og flækst inn á hálendinum þvert og endilangt. Hvað verður síðan næst, það veit ég ekki. En eitt er víst, það verður jeppi aftur, það er alveg á hreinu. |
Almennir tenglar |
Nissan tenglar |
Ferðatengdir tenglar |
Annað |
![]() |
![]() |
Tækni tenglar |