![]() |
![]() |
![]() |
Skákþing Garðabæjar 2003 24. nóv til 11. des. |
12.12.2003. JÓHANN HELGI SIGURÐSSON er nýr skákmeistari Garðabæjar. Hann leyfði aðeins eitt jafntefli en vann rest og er vel að sigrinum kominn. Í gær vann hann Hjörvar Stein Grétarsson eftir að Hjörvar skipti upp í tapað endatafl, en hann stóð sig afskaplega vel í mótinu og hækkar hann mikið á stigum. Páll Sigurðsson tapaði gegn Sigurði H. Jónssyni í skák sem skipti amk. 3 svar um eigendur. Þórir gerði svo jafntefli við Jón Einar og tryggði með því 3 sætið í mótinu. Albert byrjaði á að fá kolunnið gegn Bergi en lék svo af sér heilum manni og fékk við það koltapað. Einhvern vegin kom það svo út í endatafli að Bergur hafði hartær unnið tafl með tvo létta menn gegn hróki Alberts. Þá tók hann þá ákvörðun að fórna Riddara sem reyndist misráðið því Albert tryggði sér sigur eftir það. Jóhann H. Ragnarsson tók Svanberg í kennslustund í slavanum. Jóhann Þorsteinsson komst ekki gegn Atla og að síðustu tók Patrick Svansson Hlyn í kennslustund og var lokastaðan einstaklega glæsileg. Verðlaunaafhending verður á Hraðskákmóti Garðabæjar sem verður næsta mánudag 15. Des kl. 19. 09.12.2003. Jóhann Helgi fór langt með að tryggja sér sigurinn í mótinu í gær þegar hann lagði Jóhann H. Ragnarsson í skemmtilegri skák og uppskar vinningsforskot eða 5,5 af 6 mögulegum.. Á sama tíma tapaði Páll fyrir Þóri í skák þar sem Þórir hafði alltaf betra í, en vann svo erfitt endatafl peði yfir með biskup gegn riddara Páls.. Þórir náði Páli í leiðinni og þeir eru nú í 2-3 sæti með 4,5 vinning. Sigurður vann svo Albert eftir að hafa haft unnið lengstum og svo tapað en endaði svo á að vinna hrók og þar með skákina. Einar Karl vann Patrick og Atli vann Hlyn og Hjörvar vann Berg örugglega. Jóhann Þorsteinsson mætti svo ekki gegn Svanberg. Flýta þarf 2 viðureignum í 7. og síðustu umferð. Þetta verða skák Páls gegn Sigurði H. Jónssyni og skák Atla gegn Jóhanni Þorsteinssyni. Þessar skákir munu væntanlega báðar fara fram á miðvikudagskvöld 10. des kl. 20. Aðrar skákir klárast á fimmtudag 11. des kl. 19. 07.12.2003. 5. umferð fór fram í dag. Sigurður H. Jóns hafði lengi framan af ágæta stöðu gegn Jóhanni Helga en Jóhann náði að snúa taflinu við og vinna. Páll hafði hreint ömurlega stöðu eftir byrjunina en Albert náði ekki að nýta sér það og náði Páll gagnsókn eftir mikla þolinmæði og náði að vinna þegar tíminn fór að minnka hjá báðum. Þórir vann að því virtist frekar áreynslulausan sigur gegn Patrick og sömuleiðis Jóhann H. Ragnarsson gegn Atla. Svanberg stóð betur framan af en missti sig í endatafli gegn Bergi og tapaði. Hlynur vann svo mjög góðan sigur á Jóhanni Þorsteinssyni. Hjörvar og Jón Einar enduðu svo kvöldið með því að semja á stöðu með tveim mislitum biskupum. Ljóst er orðið að spennan fer nú að nálgast algleyming þar sem Jóhann Helgi og Páll berjast um sigurinn og titilinn Skákmeistari Garðabæjar 2003. Jóhann Helgi fær Jóhann H. Ragnarsson sem mun örugglega berjast eins og ljón, þar sem þetta er eini möguleiki JHR til að setja pressu á toppinn. Tap eða jafntefli gerir út af við möguleika JHR. Páll fær svo spútik skákmanninn Þóri Benedikts sem er nýbúinn að sanna sig með því að vinna U2000 mótið hjá TR nokkuð sannfærandi. Hann getur einnig náð Páli að vinningum með sigri. Ljóst er amk. ef báðir toppmennirnir tapa á morgun galopnast mótið. Sigurður og Albert ásamt Jóhanni H. Ragnarssyni berjast svo við að ná toppnum en ekkert nema sigrar í 2 síðustu umferðum duga hjá þeim og skila væntanlega verðlaunasæti. 07.12.2003. Jóhann Þorsteinsson var vant við látinn lengur en búist var við, þa. hann varð að gefa skák sína við Patrick. Röðun í 5 umferð liggur því nú fyrir. 5. umferð fer fram seinnipartinn í dag eða kl. 16. Skák Hjörvars gegn Jóni Einari Karlssyni sem er frestað byrjar kl. 19. í kvöld. 05.12.2003. 4. umferð var tefld í gær og úrslitin flest eftir bókinni. Jóhann Helgi vann Albert en hafði yfirleitt slightly better. Páll vann Hjörvar eftir að Hjörvar hafði fengið mikið rými en svo fór hann út í ótímabær uppskipti þegar staðan bauð í raun upp á að nýta frekar rýmið til að pressa. þe. Hann fór út í að skipta upp á tveimur köllum gegn Hrók og peði sem reyndust svo sterkari í lokin. Sigurður hafði alltaf betra gegn Atla eftir að hafa sprengt laglega upp miðborðið og vann. Jóhann H. Ragnarsson reyndi mikið að svíða lokað endatafl gegn Jóni Einari þar sem hann hafði riddara gegn Biskup en í stöðu þar sem hann stóð til vinnings gerði hann þau afdríkaríku mistök að leika peði í stað Kóngs á a6 sem gerði ekkert annað að loka stöðunni enn meir og skákin varð ekki unnin eftir það. Þórir vann Berg nokkuð örugglega og Svanberg pakkaði Hlyni saman mjög laglega. Skák Patriks og Jóhanns Þorsteinssonar var frestað og verður tefld í kvöld. Þar sem skákstjóri fer til Ólafsvíkur að keppa þar á morgun þá er ekki vitað hvenær röðun liggur fyrir en það verður í síðasta lagi á sunnudagsmorgun, vonandi þó seint í kvöld eða snemma í fyrramálið. Næsta umferð er kl. 16 á sunnudag en Skák Hjörvars verður frestað fram til kl. 19 á sunnudag vegna sveitakeppni ÍTR í skólunum í Reykjavík. Ljóst er þó nú að á fyrstu borðum mun Jóhann Helgi tefla við Sigurðu H. Jónsson og Páll mun hafa svart gegn Albert. á neðstu borðum mun líklega Hlynur tefla við Atla eða þann sem tapar í skák Jóhanns Þorsteinsonar og Patricks og Bergur og Svanberg munu tefla saman. 02.12.2003. 3. umferð lauk með mikilli jafnteflahrinu en alls lauk 4 skákum af 7 með jafntefli. Jóhann Helgi náði ekki að nýta sér skiptamun sem hann náði af Páli því Páll fékk mótsókn á kóngsvæng sem hugsanlega hefði dugað til sigurs en var mjög hættuleg því staðan var mjög opin. Skákin endaði svo í þráskák. Hjörvar lék illa af sér gegn Albert og Albert hefur því tekið forustuna á mótinu með fullt hús. Jóhann Ragnarsson missteig sig gegn Sigurði og var heppinn að sleppa með jafntefli. Jón Einar og Atli gerðu tiltölulega stutt jafntefli. Jóhann Þorsteinsson gerði einnig jafntefli við Þóri Benediktsson en það var eftir langa skák. Patrick snéri svo á Svanberg eftir að Svanberg fékk upp fína stöðu eftir byrjunina. og í síðustu skákinni vann Bergur Hlyn eftir að sókn Bergs virtist vera fjöruð út og Hlynur kominn með undirtökin. Albert er því orðinn einn efstur á mótinu með 3 vinnina , Jóhann Helgi og Páll hafa 2,5 og svo koma þeir Hjörvar og Sigurður H. Jónsson með 2. Nánar vísast í mótstöflu hér til vinstri. 30.11.2003. Nú er loksins búið að raða í 3. umferð. Sverrir sem fékk frestað í síðustu viku varð svo veikur alla helgina og er hættur í mótinu án þess að tefla skák. Hann var því tekinn úr pörun fyrir þessa umferð. Hvað varðar þá skákir Alberts og Páls í fyrstu umferð er líklegast að úrslit verði látin standa, þe. Páll vinni Sverri án taflmennsku og Albert skottu. Amk. er raðað í 3. umferð með það í huga. Eftir í mótinu eru því 14 skákmenn. 28.11.2003. 2. umferð fór fram í gær með sjö viðureignum. Nokkuð var um óvænt úrslit og eru þau helst að Hjörvar heldur áfram að standa sig vel þegar hann tók Atla Antonson í góðri skák. Ekki var vitað um styrkleika hins stigalausa Alberts Svavarssonar sem vann Svanberg sannfærandi en Albert hefur ekki teflt "þolinmóðsskák" í ein 20 ár þegar hann tók þátt í Norðurlandsmóti. Páll lék af sér peði í byrjuninni fyrir fádæma klaufaskap á móti Jóhanni en Jóhann tefldi full djarft eftir það og Páll náði gagnsókn þar sem ma. fylgdi skiptamunsfórn. Sú sókn leit mjög vel út á tímabili en fjaraði svo út þegar Jóhann náði að þvinga fram uppskipti og þá hefði komið upp endatafl þar sem Jóhann hafði hrók og 3 peð gegn Riddara og 5 peðum Páls. Í stað þess lék Jóhann af sér þar sem hann gaf kost á að vinna skiptamuninn til baka ásamt uppskiptum sem þýddi að Páll var 2 peðum yfir í drottingarendatafli sem síðan tók 50 leiki að vinna. Jóhann Helgi vann svo Jón Einar, Reyknesingarnir Patrik og Sigurður sömdu um jafntefli og Þórir vann Hlyn. Jóhann Þorsteins vann svo Berg Helgason. Sverrir mætti skottu og vann. Albert fékk skottu í fyrstu umferð og því var einni skák frestað þar sem er viðureign Páls og Sverris. Eftir 2 umferðir er staðan þá þannig að Jóhann Helgi, Hjörvar og Albert Svavarsson hafa allir fullt hús. Páll og Sverirr geta náð þeim eftir því hvor vinnur frestuðu skákina sem verður tefld líklega á sunnudag. Því verður ekki raðað í næstu umferð fyrr en þau úrslit liggja fyrir. 26.11.2003. Álftnesingurinn Albert Svavarsson hefur nú bæst við í mótið. Hann mun tefla við Svanberg á morgun en Sverrir fær Skottu í staðinn. Alls eru því 15 með í mótinu. 25.11.2003. 1. umferð fór fram í gær. Úrslit urðu skv. bókinni en þó gerði Hjörvar sér lítið fyrir og tók Patrik Svansson í bakaríið. Jón Einar Karlsson var þó stálheppinn þegar Jóhann Þorsteinsson gleymdi sér yfir klukkunni og féll á tíma en aðeins áður sá Jóhann ekki rakinn vinning. Svanberg Már hafði einnig skiptamun í forskot á Sigurð en Sigurður náði í staðinn nokkurri pressu auk þess að vera með sterka biskupa sem dugði til sigurs. Jóhann vann örugglega en Jóhann Helgi átti í mesta basli með Þóri Benediks. Bergur átti svo mjög vænlega stöðu gegn Atla en misteig sig í uppskiptum. Skákmenn athugið: Ef áhugi er fyrir því að fylla upp í tóma sætið þá stendur það til boða. Sverrir Þorgeirsson Haukum 1400 hefur þegið það boð. þá eru alls 14 skákmenn skráðir í mótið. Væntanlega mun hann tefla upp skákirnar sem Skotta hefur þegar teflt. Hann mun þá tefla við Svanberg og Pál við fyrsta tækifæri, en skák Sverris og Svanbergs verður frestað. Skákþing Garðabæjar 2003 verður haldið dagana 24. nóvember til 11. desember. Tefldar verða 7 umferðir eftir Garðabæjar-monrad (Swissneskt kerfi í 1. og 2. umferð) og verður notast við FIDE tímamörk. Þe. 90 mínútur + 30 sekúndur á leik. Mótið er reiknað bæði til íslenskra og alþjóðlegra (FIDE) stiga. Skákmeistari Garðabæjar getur aðeins verið meðlimur í Taflfélagi Garðabæjar. Verðlaun: 1. verðlaun 10.000 kr. 2. verðlaun 7.000 kr. 3. verðlaun 5.000 kr. Hæstur U2100 skákstigum 5.000 kr. Hæstur U1800 skákstigum 5.000 kr. Hver maður getur einungis hlotið ein verðlaun. Sérverðlaun eru fyrir unglinga 15. ára og yngri. Þátttökugjöld verða 2000 kr. en 1000 kr. fyrir 17. ára og yngri. Félagsmenn TG greiða 1000. kr en félagsmenn TG 17. ára og yngri fá frítt í mótið. Allir velkomnir. Dagskrá mótsins: 1. umferð. Mánudaginn 24. nóv kl. 19.00. 2. umferð. Fimmtudaginn 27. nóv kl. 19.00. 3. umferð. Mánudaginn 1. des. kl. 19.00. 4. umferð. Fimmtudaginn 4. des kl. 19.00. 5. umferð. Sunnudaginn 7. des kl. 16.00. 6. umferð. Mánudaginn 8. des kl. 19.00. 7. umferð. Fimmtudaginn 11. des kl. 19.00. Teflt verður í Garðabergi sem er félagsmiðstöð eldri borgara í Garðabæ. (Garðatorgi 7) og verður kaffi á könnunni. Tekið er á móti skráningum og fyrirspurnum í síma 861 9656 eða með tölvupósti til pall@vks.is eða tgchess@yahoo.com Áríðandi er að þátttakendur skrái sig sem fyrst því hámarksfjöldi í mótið er aðeins 28. skákmenn. |