Kossar
Saga kossins hófst þegar hellisbúinn varð þess áskynja
að salt mátti nota til kælingar í sumarhitanum.
Hann komst að raun um að salt gat hann fengið með því að sleikja
kinnar náunga síns. Síðan kom
í ljósað aðferðin var áhrifameiri ef náunginn var af gagnstæðu kyni.
Að lokum fór svo að allir gleymdu saltinu.
Jay jay. |
Sumir
telja kossa syndsamlega. En væru
þeir ólöglegir myndu lögmenn ekki leyfa þá, væru þeir óguðlegir myndu
prestar ekki koma nærri þeim, væru þeir ósiðlegir myndu jómfrúr ekki þiggja
þá væri ekki nóg af þeim myndu fátæklingarnir ekki njóta þeirra. Robert Burns |
Koss
getur verið komma, spurningarmerki eða upphrópunarmerki. En eins og hver kona ætti að vita er mjög þýðingarmikið að kunna
skil á greinarmerkjunum. |
Koss
hefur ef til vill ekki alltaf smithættu í för með sér, en hann dregur óneitanlega
úr mótstöðuaflinu.
Louise Ericson. |
Karlmaðurinn
stelur fyrsta kossinum, biður um þann næsta, heimtar
þann þriðja, tekur þann
fjórða, samþykkir þann fimmta og afber alla þá sem á eftir koma.
Helen Rowland |
Koss:
Blóm ástarinnar Ninon de
Lenclos.
Það er skynsöm stúlka sem
veit hvernig á að neita kossi án þess að missa af honum.
Ók. Höf. |
Þegar konur kyssast minnir það mig helst á hnefaleikara sem takast í hendur áður en bardaginn hefst H.L.Mencken |
|
Sá
sem biður konu um að mega kyssa hana, áður en hann gerir það, veltir á ósæmilegan
hátt ábyrgðinni yfir á hana.
Helen Rowland
Stolinn
koss er ávallt sætastur.
Maður
á að nota báðar hendur þegar maður kyssir.
Einn
aðalkostur kossins er að hann lokar munninum.