Leiðbeiningar um lífið

Gefðu meira af þér en fólk á von á og gerðu það með gleði.

Ekki trúa öllu sem þú heyrir, ekki eyða öllu sem þú átt og ekki sofa of mikið.

Þegar þú segir að þér þyki vænt um einhvern, meintu það þá.

Þegar þú þarft að biðjast afsökunar horfðu þá í augun á viðkomandi.

Ekki hlæja af draumum annarra.

Þegar þú rífst gerðu það þá af sanngirni og slepptu ljótu orðunum.

- Mundu ávallt að þú ert alveg einstakur. Eins og allir aðrir.

Ekki dæma fólk af ættingjum þess.

Talaðu hægt en hugsaðu hratt.

 Gakktu inn í herbergi eins og þú eigir staðinn.

Gefðu þér góðan tíma til umhugsunar, en vertu fljótur að framkvæma ákvarðanir þínar

 Ef þú getur ekki umborið illt með gleði, þá gerðu það að minnsta kosti með þolinmæði.

. Reyndu að rækta það göfuga og hreina sem í þér býr, óháð því ógöfuga og óhreina sem þú getur sennilega ekki heldur verið laus við.  

Hugsaðu um hvað skyldan býður þér en ekki um aðstæður.  

Mundu reglurnar þrjár: Virðing fyrir þér, virðing fyrir öðrum og ábyrgð á öllum gjörðum þínum.

Þegar þú attar þig á því að þú hefur gert mistök flýttu þér þá að leiðrétta þau.

Vertu opin fyrir breytingum en breyttu ekki gildismati þínu.

Lifðu góðu og heilbrigðu lífi.  Þegar þú eldist og lítur til baka geturðu notið lífsins í annað sinn.

Biddu bænir.  Kraftur þeirra er ómetanlegur.

Deildu þekkingu þinni með örðu fólki.  Það er eina leiðin til að öðlast ódauðleika.

Finnist þér friður góður skaltu engum andmæla.

Stórar huganir og hreint hjarta – er það sem við eigum að biðja um.

Gleymdu ekki að gefa, en gefðu og gleymdu.

Gerðu gott, og kastaðu endurminningunum um það í hafið.  

Ekki grípa fram í þegar verið er að slá þér gullhamra.

  Mundu að raddblærinn segir oft meira en orðin sem þú talar.

Gerðu aðeins meira en ætlast er til af þér, og tækifærin munu elta þig.

Ekki skipta þér af málefnum annarra af fyrra bragði.

  Gef gaum að vegi þínum eins og þú sæir hann í hinsta sinn.

 Gerðu það að reglu að fara einu sinni  á ári á stað sem þú hefur aldrei séð.

Stundum getur það verið gæfa að fá ekki það sem þú þráir.

Mundu að persónuleiki þinn er örlög þín.

Þú getur mælt velgengni þína á því hverju þú þurftir að fórna til að öðlast hana.

 

Lífið.

 

 Maðurinn eyðir lífinu í að grufla yfir fortíðinni, kvarta yfir nútíðinni og skjálfa vegna framtíðarinnar.

 Njóttu lífsins í dag en þannig, að þú getir líka notið lífsins á morgun.

Lífsreynslan er stundum eins og hárgreiða gefin sköllóttum manni.

Lífið er verknaður og það eina sem linar þrautir örvæntingar og illsku er að reyna að gera gott.  Það dugar gegn öllu.

Lífsviska er meðal annars fólgin í því að leiða hjá sér það sem skiptir ekki máli.

Í lífsins skóla eru þeir verst farnir sem læra mest.

Lífið er eins og matseðill, maður getur ekki notið alls.

Lífið skal metið með mæli verkanna, en ekki tölu daganna.

Við skulum reyna að laga okkur að lífinu; það er ekki lífsins að laga sig að okkur.

Ef þú lítur í kringum þig, þá geturðu alltaf fundið einhvern sem er verr settur en þú sjálfur.  Vertu þakklátur fyrir að vera ekki í hans sporum.

-Manneskjan er prentuð í einu eintaki aðeins og verður aldrei skráð á ný meðan veröld stendur.

Þeir sem óttast dauðann mest eru þeir sem njóta lífsins síst.

Lífið er árekstrur milli ráðagerðar og raunveruleikans.

Tilgangur lífsins er að verða hamingjusamur og einhvers virði.

Handan við dauðann er svarið við því, hvað lífið er.

Sá óttast lífið minnst, sem á dýrmætasta lífið.

   <<Kossar         Gleðin

 

Heim