Vinátta
Vinargjöf
skal virða og vel hirða.
Það hjarta, sem vináttan hefur vermt og blíðkað, þolir ekki sífelldar ávítur.
Vinátta
byggist aldrei á skynsemi, aðeins skilningi.
Því
ríkari sem vinir þínir eru, þeim dýrari reynast þeir þér.
Gifstu
aldrei konu sem þú mundir ekki velja þér að vini væri hún karlmaður.
Það
er ástæðulaust að elska óvini sína. Notaðu manngæskuna heldur til að
vera betri við vini þína.
Vinátta
er mun sorglegri en ást, hún endist lengur.
Þinn
besti spegill er gamall og góður vinur.
Þeir
voru svo hamingjusamir að meira að segja eftir að þeir voru orðnir öldungar
héldu þeir áfram að leika sér saman eins og hvolpar.
-
það er mótlæti mannanna, hve óvinátta óvinanna er miklu áræðanlegri heldur en vinátta vinanna.
Ekki eru allir vinir þínir, sem mæta þér með bros á vörum og taka vingjarnlega í hendina á þér.
Kunninginn
segir til nafns þegar hann hringir. Vinurinn þarf þess ekki.
Kunninginn
byrjar á því að segja frá lífi sínu í smáatriðum.
Vinurinn byrjar á því að spyrja hvernig þú hafir það.
Kunninginn
heldur að umkvartanir þínar séu nýjar af nálinni.
Vinurinn veit að þú hefur tönnlast á þessu í fjórtán ár og
segir þér að gera nú eitthvað í málunum.
Kunninginn
hefur aldrei séð þig fella tár. Vinurinn
er með axlirnar blautar af tárum þínum.
Kunninginn
veit ekki hvað foreldrar þínir heita fullu nafni. Vinurinn er með símanúmer
foreldra þinna í dagbókinni sinni.
Kunninginn
veit lítið um fjölskyldu þína. Vinurinn
veit allt um heilsufar,matarræði og hjónabandserfiðleika hvers einasta ættingja
þíns.
Kunninginn
færir þér vínflösku þegar þú býður honum í mat.
Vinurinn mætir snemma til að hjálpa þér að elda og verður eftir
til að hjálpa þér með uppvaskið.
Kuninginn
hringir í þig klukkan tíu að kvöldi, bara til að spjalla.
Vinurinn veit að þér er illa við að fólk hringi eftir níu á kvöldin.
Kunninginn
vildi gjarnan vita meira um ástarmál þín.
Vinurinn veit svo mikið um þau að hann gæti beitt þig fjárkúgun.
Kunninginn
hegðar sér eins og gestur á heimili þínu.
Vinurinn opnar ískápinn, setur fæturna upp í sófann, svarar maka
þínum fullum
Gerðu
aldrei neitt, sem óvinur þinn má ekki vita.
-
Bind
þú aldrei vináttu við neinn mann, fyrr en þú veist hvernig honum hefur
farist við fyrri vini sína.
-
Vingjarnlegt orð er útlátalítið, en það er þó oft mikils virði.
Til
góðs vinar liggja gagnvegir.
Vinalaus maður ferðast eins og útlendingur alla ævi
Í
þörf skal vin reyna.
Lifðu
lífinu þannig að vinum þínum leiðist þegar þú ert ekki við.
Langt
finnst þeim er vinar væntir.
Vingjarnleiki
er mál sem jafnvel sá mállausi getur talað og sá heyrnalausi heyrt.
Maður
þarf hvíld frá öllu öðru hverju, jafnvel bestu vinum sínum.
-
Kunninginn
álítur að vinskap ykkar sé lokið ef þið lendið í rifrildi.
Vinurinn veit að rifrildi innsiglar vináttuna.
-
Nýir
vinir eru silfur, gamlir gull.
-
Vinir
sem deila skerpa huga hvors annars.
-
Sá
sem vill veita öðrum góðum félagsskap á að halda sig í góðum félagsskap.
Það kostar okkur ekki mikið að sá fræi kurteisinnar og
vináttunnar unhverfis okkur.
Taktu
þér tíma til að líta um öxl. Þeir
sem
standa
við bakið á þér í raunum eru sannir vinir.
-
Í návist vinar getur maður
hugsað
upphátt.
-
Hugarfar
þitt ákveður hvers konar vini þú dregur að þér.
Það
sem menn kæra sig ekki um að hlusta á hjá vini sínum,
heyra menn oft hjá óvini sínum.
-
Talaðu
aldrei um óvini þína, þeir eru þitt eigið sköpunarverk.