Sex daga gönguferð í ágúst 2001: Þjórsá - Þjórsárver - Kerlingarfjöll

Heimasíðan er hér!Click here for English version!

Þessi gönguferð var á vegum Ferðafélags Íslands. Gist var í tjöldum á þremur stöðum. Gönguleiðin sjálf er frekar flöt og þannig séð auðveld en vaða þarf nokkrar ár sem geta verið farartálmi. Það sem gerði þessa ferð sérstaka var hversu afskekkt og óaðgengilegt svæðið er. Til marks um það má geta að ég sá ekkert fé á leiðinni fyrr en komið var suður fyrir Blautukvíslar. Þjórsárver eru mikilvægasta varpsvæði Heiðargæsarinnar. Veðrið var ágætt allan tímann.

Dagur 1: Þjórsá - Arnarfell hið mikla

Ferðin hófst við bakka Þjórsár þar sem beðið var eftir ferjumanni. Hópurinn var ferjaður yfir dýpsta ál Þjórsár á gúmbáti sem er líklega óvæð á þessum stað. Gengið var upp með Þjórsá því krækja þurfti fyrir ófær kviksyndi. Þrátt fyrir að þurrasta leiðin væri valin þá þurfti samt sem áður að ganga varlega yfir mýrar svo að fætur héldust þurrir. Tjaldað var í skjóli sunnan undir Arnarfelli.

Dagur 2: Arnarfell hið mikla

Dagsferð upp á Arnarfell hið mikla fór rólega af stað því að gróðurinn fangar athyglina. Hér í suðurhlíðum Arnarfells er líklega einn hæsti samfelldi gróðurfláki á landinu í tæplega 1000m hæð. Síðasti hluti leiðarinnar er brött grjótskriða þar sem eitt skref upp getur þýtt tvö niður. Uppi á Arnarfelli hinu mikla var mikið útsýni yfir Arnarfell hið minna, Hofsjökul og Þjórsárver. Leiðin niður vesturhlíðarnar var nokkuð brött ofan til en skánaði eftir því sem neðar dró. Á bakaleiðinni var gil milli Arnarfells og Kerfjalls skoðað.

Dagur 3: Arnarfell hið mikla - Nautalda

Þennan dag var gengið í stórum sveig frá Arnarfelli hinu mikla fyrir Múlajökul og síðan tjaldað við Nautöldu. Tvær stórar ár eru á leiðinni og nokkrar minni. Hægt var að komast á jökli upp fyrir Arnarfellskvísl en vaða þurfti Miklukvísl. Það þurfti líka að vaða Nauthagakvísl og nokkrar Múlakvíslar en aðrar mátti stikla. Megnið af leiðinni liggur um svokallaða múla sem eru grónar jökulöldur sem nú eru góð hreiðurstæði fyrir Heiðagæsir. Einnig mátti sjá á leiðinni gamla gæsarétt. Þaðan er fallegt útsýni til Hjartafells sem ber nafn með rentu.

Dagur 4: Nautalda

Þennan dag þurfti undirritaður, vegna fótmeiðsla, að sleppa dagsferð inn að Lónstindi sem er inn af Ólafsfelli. Þess í stað rölti ég upp á Nautöldu. Þaðan er gott útsýni yfir syðri hluta Þjórsárvera og hinar mörgu ár sem kvíslast um verin.

Dagur 5: Nautalda - Efri-Kisubotnar

Þennan dag var gengið frá Nautöldu yfir Blautukvíslareyrar. Blautukvíslarnar má sumar stikla en ég þurfti að vaða eina. Þaðan lá leiðin yfir að skála jeppamanna sem heiti Setrið. Síðan var stefnt að Kerlingarfjöllum og tjaldað í Efri-Kisubotnum.

Dagur 6: Efri-Kisubotnar - Kerlingarfjöll

Frá Efri-Kisubotnum lá leiðin norður fyrir Kerlingarfjöll þar sem hægt var að fylgja bílslóða alla leiðina í skála í Hveragili í Kerlingarfjöllum þar sem ferðin endaði.