16 liða úrslit
Skákfélag Hafnarfjarðar 10½ - Kvennalandsliðið 1½
Hjá Skáksambandi Íslands fóru fram athyglisverð viðureign í Bikarmóti Plúsferða í gær (25. september). Þetta var viðureign SH - Kvennalandsliðsins.
Ég held að ég fari með rétt mál að þetta sé fyrsti leikur kvennalandsiðsins hér landi í amk 25 ár svo að sú viðureign var söguleg fyrir þær sakir. Einnig er hver viðureign hjá SH söguleg því að það getur verið lokaverkefni þess félags eins og menn vita. Þess vegna var mikil eftirvænting í loftinu og reyndar afskaplega skemmtilegt andrúmsloft.
Kvennalandsliðið mætti með strekt og skemmtilegt lið til leiks og var sérstaklega ánægjulegt að sjá þetta lið birtast. Eftirtaldar skipuðu liðið eftir borðaröð: Lenka Ptácníková, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Harpa Ingólfsdóttir, Aldís Lárusdóttir, Áslaug Kristinsdóttir og Anna Björg Þorgrímsdóttir. Það er alveg ljóst að hér fer mjög sterkur kjarni sem að hægt á að vera að byggja ofan á með samstilltu átaki allra aðila. Einnig er mikilvægt að þær sinni þessu vel og gangi á undan með góðu fordæmi. Reyndar efast ég ekki um að svo verði.
Lið SH var ógnvekjandi. Hver sleggjan á fætur annarri og greinilegt að menn þar á bæ ætla sér að kveðja félagið sitt með sóma. Lið þeirra var skipað eftirtöldum mönnu eftir borðaröð: Ágúst Sindri Karlsson (2340), Sigurbjörn Björnsson (2320), Asgeir Arinbjörnsson (dottin út úr lista á skákaranum er örugglega með nálægt 2300 ), Páll A. Þórarinsson (2200 ), Björn F. Björnsson (2195 ), Þorvarður Ólafsson (2075). Það er greinilegt eins og margir hafa haldið fram að þetta lið getur unnið keppnina.
Því miður var ég upptekinn við viðureign Unglingalandsliðsins - TG a svo að ég náði ekki að fylgjast með sem skyldi. Engu að síður var frammistaða kvennalandsliðsins stórgóð í fyrri umferðinni. Lenka og Ágúst Sindri telfdu hörkuskák og vann Agúst að lokum. Á öðru borði gerði Lilja sér lítið fyrir og vann Sigurbjörn. Ásgeir vann Hörpu á 3 borði en á 4 borði vann Páll Aldísi. Áslaug gerði jafntefli við Börn á því 5 en Þorvarður sigraði Önnu á 6 borði.
Staðan var því 4 1/2- 1 1/2 Sh í vil eftir fyrri umferðina og miðað við hina grífarlegu sterku sveit SH er það að mínum dómi mjög góður árangur hjá kvennalandsliðinu. Í seinni umferðinni sýndi SH hins vegar minn mikla styrk sinn með því að vinna 6 - 0 og því viðureignina 10 1/2 - 1 1/2. Það er greinilegt að stórveldin TR og Hellir eigna erfitt verkefni fyrir höndum því að ég get ekki séð betur en SH sé ekki með síðra lið en þessi 2.
- Jóhann H. Ragnarsson |