Starfsemi
Stjórn
Saga félagsins
Meistaraflokksliðið
Rós mánaðarins
Vefir vikunnar
Staðan
Netkeppni TG og SA
Bikarmót Plúsferða
TGingurinn
Pistlahornið
Aðrar síður
Fréttir
Heim
16 liða úrslit

A-sveit Hróksins ber sigurorð af b-sveit TG


Sterkt lið Hróksins lenti í nokkru basli með vel skipaða og baráttuglaða sveit Garðbæinga í gærkvöld og þurftu að hafa fyrir hlutunum. Hróksmenn mættu með sitt sterkasta lið og voru þeir fjórmenningar á efstu borðunum ansi drjúgir. Í heildina var þó styrkleikamunurinn full mikill og enduðu leikar 3-9 gestunum í hag gegn 4.deildar liðinu..

Fyrri umferð.
Ari Guðmundsson-Stefán Kristjánsson      0-1
Jón Þór Bergþórsson-Róbert Harðarsson   0-1
Ingi Þór Einarsson-Tómas Björnsson        0-1
Þorlákur Magnússon-Einar K Einarsson     0-1
Páll Sigurðsson-Sveinbjörn Jónsson          1/2
Jón Magnússon-Hrafn Jökulsson              1-0

Staðan í hálfleik var því 1,5 -4,5 fyrir Hróknum.

Þá var brugðið á það ráð að skipta inn ferskum varamönnum.

Seinni umferð:
Jón Þór Bergþórsson-Stefán Kristjánsson    0-1
Þorlákur Magnússon-Róbert Harðarsson     1/2
Páll Sigurðsson -Tómas Björnsson             1/2
Jón Magnússon-Einar K Einarsson             0-1
Sigurður Sigurjónsson-Sveinbjörn Jónsson  1/2
Stefán Jónsson-Hrafn Jökulsson                0-1

Seinni umferðin fór því einnig 1,5 - 4,5 og því endaði viðureignin 3-9.

- Páll Sigurðsson