Starfsemi
Stjórn
Saga félagsins
Meistaraflokksliðið
Rós mánaðarins
Vefir vikunnar
Staðan
Netkeppni TG og SA
Bikarmót Plúsferða
TGingurinn
Pistlahornið
Aðrar síður
Fréttir
Heim
Í hugum flestra er skákin fyrst og fremst einstaklingsíþrótt. Engu að síður hefur það átt  við um okkur skákmenn eins og flest annað keppnisfólk, að við höfum fylkt okkur undir merki félaga og allt starf skákhreyfingarinnar  hefur í raun grundvallast á tilvist taflfélaganna. 

Á tímum internetsins, þar sem hver og einn getur teflt eins mikið og hann lystir, þegar hann lystir, þarf þetta fyrirkomulag þó ekki að vera sjálfgefið enda hafa íslensk taflfélög á undanförnum árum upplifað miklar breytingar í mótasókn og almennri þátttöku í félagsstarfseminni, því miður til hins verra.

Vafalaust má rekja þessa þróun að einhverju leyti til internetsins enda má fullyrða að þrátt fyrir dræmari mótasókn hafi Íslendingar aldrei í Íslandssögunni teflt eins mikið og um þessar mundir. Sú taflmennska fer hinsvegar að mestu fram á internetinu í stað þess að vera á vettvangi taflfélaganna eins og áður var.

Skákhreyfinginn hefur verið að bregðast við þessu breytta umhverfi og hún verður áfram að leita allra leiða til að styrkja taflfélögin og efla þá starfsemi sem þar fer fram, enda er og verður sú starfsemi forsenda blómlegs skáklífs á Íslandi.

Bikarmót Plúsferða er skemmtileg nýjung í skáklíf Íslendinga. Hún er vel til þess fallin að virkja skákmenn til starfa á vettvangi taflfélaganna og styrkir þannig þann grunn sem skákhreyfingin byggir á. Þátttaka skákmanna í Íslandsmóti skákfélaga – Deildakeppninni og Hraðskákkeppni taflfélaga hefur sýnt að liðakeppnir ýmiskonar virðast jafnvel njóta meiri vinsælda en venjuleg mót. Þessari þörf eiga taflfélögin að sinna og er Bikarmót Plúsferða ögrandi verkefni af þeim toga.

Taflfélag Garðabæjar á því heiður skilinn fyrir að efna til keppninnar og er frumkvæði og áræði félagsins við undirbúninginn til mikillar fyrirmyndar. Ekki þarf að efa að framkvæmdin verði einnig vel af hendi leyst enda mikið í keppnina lagt og umgjörðin öll hin skemmtilegasta.

Verði undirtektir annarra í líkingu við þá alúð sem TG hefur sýnt málinu og taflfélögunum tekst að nýta sér keppnina til uppbyggingar og auðgunar á eigin starfsemi mun Bikarmótið vafalaust vinna sér fastan sess í skákhreyfingunni. Þá er til mikils unnið fyrir íslenskt skáklíf.


Hrannar Björn Arnarsson,
Forseti Skáksambands Íslands
Setningarávarp forseta Skáksambands Íslands