![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Spá sérfræðinganna |
Sigurður Daði Sigfússon, Ingvar Þ. Jóhannesson, Baldvin Gíslason, Björn Þorfinnsson, Kristján Eðvarðsson, Sigurbjörn Björnsson, Rúnar Sigurpálsson, Páll Sigurðsson og Jón Viktor Gunnarsson hafa spáð í forkeppnina og 16 liða úrslitin. Hver "spámannanna" spáði fyrir um úrslit í hverri af viðureignunum (1, X eða 2) og samanlögð spá varð þessi: |
Viðureign Spá Forkeppni: 1-X-2 Skákfélag K.R. : Hrókur b-sveit 5-1-3 Skákf. Reykjanesbæjar : Tafld. Bolungarvíkur 1-1-7 16 liða úrslit: 1-X-2 Unglingalandsliðið : Taflfélag Garðabæjar a-sveit 6-0-3 Taflf. Garðabæjar b-sveit : Hrókur a-sveit 2-0-7 Taflfélagið Hellir b-sveit : Taflf. Reykjavíkur a-sveit 0-0-9 Skákf. Selfoss og nágr. : Taflf. Reykjavíkur b-sveit 0-0-9 Skákfélag Hafnarfjarðar : Kvennalandsliðið 9-0-0 Taflfélagið Hellir a-sveit : Skákfélag Akureyrar 6-1-2 |
Úr spánni má lesa að sérfræðingahópurinn telur að T.R. sveitirnar muni komast örugglega áfram og að Kvennasveitin muni eiga litla möguleika gegn S.H. Mest óvissa ríkir hins vegar um úrslitin í viðureign Skákfélags K.R. og Hróksins b- sveit. Helgast það eflaust af því að menn eru óvissir um hverjir muni tefla fyrir K.R. Í nokkrum tilfellum hafa menn spáð "jafntefli", það er að liðin verði jöfn eftir atskákirnar. Þess má geta að ef enn er jafnt í viðureign eftir atskákirnar þá eru tefldar hraðskákir þar til sigurvegari fæst. |
Taflfélag Kópavogs mun mæta sigurvegurunum í viðureign Taflfélags. Reykjanesbæjar og Tafldeildar Bolungavíkur. Sigurvegari viðureignarinnar milli Skákfélags K.R. og Hróks b-sveit mætir Taflfélagi Vestmannaeyja. Ekki verður spáð í þær viðureignir fyrr en forkeppni er lokið. |
Eldri spár: |
Gunnar Björnsson, Rúnar Sigurpálsson, Ríkharður Sveinsson, Jón Viktor Gunnarsson, Erlingur Freyr Jensson, Halldór Grétar Einarsson, Ingvar Þór Jóhannesson og Páll Sigurðsson spáðu í viðureignir 8 liða úrslitanna. Það er skemmst frá því að segja að spáin varð nánast samhljóða! T.R. b - Taflf. Reykjanesb. 1 Hellir a - Hrókurinn a 1 T.G. - T.R. a 2 S.H. - Hrókurinn b 1 Einungis Páll Sigurðsson brá útaf þessari spá og það aðeins á einni viðureign, en hann tippar X á viðureign T.G. og T.R. a. Spjallað: Ég hef trú á að TR-b sveit taki Reyknesinga létt. Þeir hafa breiddina sem þarf. Hellir stillir einnig upp gríðarsterku liði og það er einungis Stebbi Kristjáns sem á eftir að standa upp í hárinu á þeim. TG hinsvegar fær Elvar óvænt heim og með liðið: Elvar, Kristján, Ásgeir, Björn, Jóhann, Leifur; getur allt gerst. - Páll Sigurðsson S.H. - Hrókurinn b. Þetta verður yfirburða sigur Hafnfirðinganna. Þeir eru með menn yfir 2000 stig að ég held á öllum borðum og með fullri virðingu fyrir Hróknum þá er breiddin ekki mikil þar á bæ nema þegar þeir nota erlenda titilhafa. Ég veit ekki til þess að þeir muni gera það í bikarkeppninni því spái ég öruggum sigri Hafnfirðinga. - Jón Viktor Gunnarsson |