![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Undanúrslit TR a - TR b Ég vil gerast svo djarfur að spá TR-b sigri á móti TR-a. Í liðinu eru feyki góðir strákar sem allir eru góðir í styttri skákum. Enginn þeirra er slakari en ca. 2200 stig. Því hef ég trú á að TR-b vinni með 1-3 vinninga mun. Það sem gæti þó skekkt þessa stöðu er ef Björgvin, Þröstur Þórhalls og Margeir verða með. Sveitin Margeir, Þröstur, Björgvin, Sævar, Þorsteinn Þorsteins og Benidikt eru td. helv. öflugir. Fyrstu þrír hafa hins vegar ekki sést hingað til svo ég viti. Og ég geri ekki ráð fyrir að það breyti miklu þó einn af þeim mæti. Sveitunum er líka ekki skipt alveg eftir styrkleika heldur eftir yngri og eldri mönnum. B. liðið verður án efa skipað þeim Jóni Viktori, Arnari Gunnarssyni, Ingvari Jóhannssyni, Braga Þorfinns, Sigurður Páli Steindórs og einhverjum öðrum. td. Guðmundi Kjartans eða Degi Arngríms sem virðist orðinn feykiöflugur. SH - Hellir Hin viðureignin í undanúrslitunum verður einnig feykispennandi. Hellir er hins vegar með mjög öflugt lið og ég geri ekki ráð fyrir að þeir taki neina sénsa á móti Hafnarfirði sem einnig er með hörkulið. Td. er það eina liðið sem hefur unnið Hraðskákkeppnina fyrir utan TR og Helli. Líklegt lið Hellis. Hannes, Helgi Áss, Helgi Ólafs, Jón L, og síðan einhver af eftirtöldum Ingvar Ásmunds, Björn Þorfinns, Davíð Ólafs, Lenka, Karl Þorsteins,.Bragi, Kristján Eðvars. Lið Hafnarfjarðar: Ágúst Sindri, Sigurbjörn Björnsson, Ásgeir Ásbjörnss, Páll Þórarins, Björn Freyr Björnsson, og einhver af eftirtöldum: Sverrir Björnsson, Heimir Ásgeirsson eða Þorvarður Ólafsson Ég geri ráð fyrir að Hellir vinni með minnsta mun.Þeir vinna þetta á 4 og 5 borði sem eru greinilega sterkari Hellismegin. Einnig er ekki líklegt að þeir tapi meiri en 1 vinning hver á fyrstu 4 borðunum. Ég tel jafnar líkur á neðsta borði. - Páll Sigurðsson |