![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Viðtal við Helga Áss Grétarsson |
Spyrill: Hvar liggur styrkur ljónanna (TR b)? Helgi Áss: Ég hef leitað í mörg ár en ekki fundið hann. En veikleiki? Það vantar ekki á þeim typpið. Verst að þeir hafa ekki fæðst með meiri hæfileika en að brúka kjaft! Það hefur vakið athygli þegar efstu borð ykkar eru skoðuð að þið eigið mun auðveldara með lið frá Reykjavík! Eru efstu borðin hjá liðum utan Reykjavíkur sterkari en hjá Reykjavíkurliðunum (fyrir utan Helli!). Hellir hefur verið á styrk hjá Byggðastofnun um aldur og ævi. Til þess að endurgjalda greiðann höfum við látið nokkra punkta renna til landsbyggðataflfélaga. Verður Snorri Bergsson skyldaður til að tefla eins og versti teóríuhestur í þessum leik? Snorri þekkir téóríu grísku varnarinnar mjög vel - get ekki betur séð en að honum sé ókleift annað en að tefla eins og góðu téóríhrossi sæmir. Nú er það vel þekkt á stundum sem þessum að menn syngja með í þjóðsöngnum sem lokapunkt til að stemma sig upp fyrir leikinn. Munum við heyra þig taka undir? Ég er landsþekktur söngvari og geta allir skákmenn, sem hafa orðið þess heiðurs aðnjótandi að heyra í mér, borið vitni um það. |