Starfsemi
Stjórn
Saga félagsins
Meistaraflokksliðið
Rós mánaðarins
Vefir vikunnar
Staðan
Netkeppni TG og SA
Bikarmót Plúsferða
TGingurinn
Pistlahornið
Aðrar síður
Fréttir
Heim
Viðtal við Björn og Braga Þorfinnssyni
Spyrill: Nú eruð þið fyrstu bræðurnir í sögu keppninnar til að keppa í úrslitaleiknum. Hefur það mikið að segja fyrir ykkur?
Björn "Það er ljóst að líf mitt verður aldrei samt"
Bragi: Þú getur rétt ímyndað þér. Þetta hefur gríðarlega þýðingu fyrir mig bæði sem skákmann og sem litla bróður.

Nú eruð þið í sitt hvoru liðinu í leiknum. Þýðir það ekki erfiða stöðu eftir leik? Annar í skýunum en hinn niðurbrotinn?
Björn: "Jú það verður mjög leiðinlegt að sjá Braga þunglyndan næstu daga eftir leikinn, ég mun samt reyna að peppa hann aðeins upp fyrir jólin."
Bragi: Jú en svona er þetta sport bara . Þetta er harður skóli og oft stutt milli hláturs og gráturs. Við bræðurnir höfum verið í þessum bransa lengi og vitum að hverju við göngum. Annar okkar verður í tapliðinu og hann verður fúll.... en heimurinn ferst ekki.


Nú hefur liðstjóri ljónanna lýst því yfir að í liði Hellis séu bara steinaldarmenn. Skapar það erfiðeika Bragi að vera skyldur steinaldarmanni?
Bragi: Vissulega skapar það erfiðleika kjáninn þinn.
Yfirlýsing frá Birni Þorfinnssyni: "Ég mótmæli!!"


Verður eitthvað skipst á upplýsingum fyrir leikinn um mótherja?
Björn: Nei, ekki glæta. Þangað til að leiknum er lokið þá tel ég mig ekki eiga neinn bróður.

Má reikna með sálfræðitrikkum fyrir þennan leik á heimilinu? Mun vekjaraklukkan td hringja alveg óvart um miðja nótt í öðru herberginu? Og hvor fær aðgang að tölvunni í undirbúningnum fyrir leikinn?
Bragi: Nei við pabbi erum löngu búnir að flæma Bjössa að heiman og hann er landflótta vestur á nesi eins og Osama Bin Laden í Tora Bora.
Björn: Ég mun dvelja í ToraBora (þ.e. hjá kærustunni) fram að leik og verð því óhultur gegn öllum brögðum. Hinsvegar er Bragi berskjaldaður og ég mun nýta mér það. Hinsvegar er það annað mál að á uppvaxtarárum okkar bræðra þá nennti ég aldrei að nota sálfræði á Braga, ofbeldi var og er mun áhrifaríkara.


Nú er Björn kjúklingurinn hjá liðsmönnum Tinna en Bragi einn af reynslujöxlunum í ljónunum. Á Bragi einhvern möguleika á að lyfta bikarnum, Björn. Eða Bragi, þýðir þetta (þar sem snerpa telur mikið í atsák) að ellin þvælist fyrir Birni og félögum svo að þetta verði tiltölulega einfalt fyrir ljónin?
Bragi: Já satt best að segja held ég að ellismellirnir í hellinum eigi ekki sjéns í okkur ungu ljónin í þessum leik. Snerpan og liðsandinn hefur fleytt okkur alla leið í þennan úrslitaleik og við erum engan veginn hættir. Við erum með mikla breidd og höfum innan okkar raða unga taktíska stráka sem eru tilbúnir að gefa sig alla í þennan leik. Við ólumst upp í T.R., höfum allir átt góðar stundir í T.R., fengum allir broskalla hjá Valla í T.R. og þann 14. desember n.k. munum við sigra fyrir T.R. Við munum að öllum líkindum tileinka sigurinn guðföður okkar allra Ólafi H. Ólafssyni.
Björn: Þeir eru snöggir strákarnir, en því miður er það ekki nóg. Menn þurfa að geta eitthvað líka.


Hvernig metið þið möguleika ykkars liðs í þessum leik?
Bragi: Ég ætla að taka stórt upp í mig og fullyrða að við böttum þetta. Vona að ég þurfi ekki að kyngja þessu ofan í mig.
Björn: Möguleikar okkar eru afgerandi. Ég lít á þetta sem formsatriði.

Nú hefur verið ákveðið að banna trommur og lúðra í leiknum. Mun það hjálpa öðru liðinu?
Bragi: Nei það skiptir ekki miklu máli.
Björn: Já það mun hjálpa ljónunum mikið. Við Hellisbúar erum vanir skarkala og það verður óþægilegt að tefla í þögninni. Þess vegna verð ég að biðja Snorra G. Bergsson Hellisbúa og Arsenalmann að koma okkur til hjálpar og stunda bumbuslátt á leikstað. Varla er búið að banna bumbur líka?


Mun Glefsir hafa sitt að segja í þessum leik?
Björn: Nei. Við TRingar og Hellisbúar berum litlar taugar til þessa lukkudýrsígildis. smjéééé
Bragi: Það eru nú allir orðnir þreyttir á þessu Glefsis kjaftæði.