Starfsemi
Stjórn
Saga félagsins
Meistaraflokksliðið
Rós mánaðarins
Vefir vikunnar
Staðan
Netkeppni TG og SA
Bikarmót Plúsferða
TGingurinn
Pistlahornið
Aðrar síður
Fréttir
Heim
Viðtal við Rúnar Sigurpálsson
Spyrill: Nú eru margir á því að báráttan um sigurinn í Bikarmóti Plúsferða standi á milli TR, Hellis, SH og ykkar í SA. Jafnvel er talið að b sveitir TR og Hellis geti blandað sér í baráttuna. Ertu sammála þessu og hvernig meturðu möguleika SA í mótinu?

Rúnar: Já, ég er sammála þessu nema hvað ég tel möguleika B sveita Hellis og T.R. takmarkaða. Hvað okkur S.A. menn varðar tel ég okkar möguleika byggjast á því hve sterku liði við náum að stilla upp. Ef við verðum með okkar sterkasta lið tel ég ekkert því til fyrirstöðu að við förum langt, við erum alþekkt stemmningslið og því ætti bikarkeppnisformið að henta okkur vel.  

Hver er þín skoðun á keppni sem þessari?

Ég hef ekkert nema gott um hana að segja. Það var löngu tímabært að fá inn bikarkeppni sveita í skákflóruna. Mér sýnist líka sem ykkur T.G. mönnum sé að takast að búa til umhverfi í kringum hana sem trekkir að og rúsínan í pyluendanum er náttúrulega að koma keppninni inn á lengjuna.   

Hvar telurðu mesta möguleikana á "óvæntum" úrslitum í forkeppninni og 16 liða úrslitunum?

Sennilega koma einhverjir til með að túlka það sem óvænt úrslit þegar Skákfélag Akureyrar slær út Helli í 16 liða úrslitum, annars gæti ég trúað að Skákfélag Reykjanesbæjar og Bolungarvík komi til með að heyja hörkukeppni í forkeppninni og eins verður viðureign sigurvegaranna þar og T.K. athyglisverð. Að öðru leyti spái ég því að úrslitin verði eftir bókinni.
Önnur viðtöl:
Björn Þorfinnsson
Ingvar Þ. Jóhannesson