| Ég man eftir því að ég sat heima, horfandi á sjónvarpið og þá hringdi Hans Ragnar (gítarleikari) í mig og vildi fá mig til að spila á bassa í hljómsveit sem hann og Palli (trommuleikari) voru að pæla í að stofna. Ég var þá kominn með aðra höndina á gítarinn eftir að hafa fiktað í einhverum rafmagnsgítar í selinu, ég hafði engan áhuga á að spila á bassa og vissi þá að Gummi var eitthvað byrjaður að pæla í bassaleik þannig að ég mældi með honum. Mig langaði samt ekki að fara frá hugmyndinni að vera í bílskúrsbandi og spurði því hvort það vantaði ekki auka gítarleikara. Sú hugmynd fór ekki illa í þá tvo og keypti ég þá mér rafmagnsgítar og magnara fyrir skuldarbréf sem ég hafði fengið í skírnargjöf. Hans hefur þá alltaf verið betri gítarleikari því hann hefur spilað töluvert lengur en ég en með hjálp hans, internetsinns og nokkurra bóka þá hef ég náð kúnstinni að spila á gítar án kennslu. |