[Hvað er FUME] [ Hvað er einelti] [Andlegt einelti ] [Líkamlegt Einelti] [Hver er tilgangurinn með þessu félagi] [Hverjir leggja í einelti] [En af hverju] [Hvernig er hægt að vita að einhver er lagður í einelti] [Hvernig á að halda sér öruggum] [Nokkur fyrirbyggjandi viðmið ] [Viðtöl við fórnarlömb ] [Þeir sem tengjast einelti] [ Þolendur] [Gerendur] [ Taglhnýtingar]
Hver er tilgangurinn með þessu
félagi? Og hvað ætlar það að gera?
Það verður lögð sérstaklega mikla áherslu
á sjálfsöryggið hjá krökkunum. Það
verður reynt að auka það einsog hægt er. Aðalega
með því að kenna þeim að svara fyrir sér.
Og annað til þess að auka sjálfsöryggi krakkana
er að hafa eina til þrjár bæjarskemmtanir sem krakkarnir
í félaginu sjá um. Þá helst skemmtiatriðin
og alles. Síðan verður unnið mjög náið
með skólanum, og upplýst hverjir eru að leggja í
einelti. Síðan á að tala við forldra gerandanna.
Þá meina ég að það verður einn stór
fundur með öllum foreldrum skólans. Því það
er niðurstaðan mín að rót vandamálsins
eru foreldrar sjálfir. Þess vegna þarf að tala
við þau sérstaklega.
Síðan verður fengið einn trúnaðarmann,
sem krakkarnir geta talað við og sagt frá hinu og þessu.
Og bara til þessa að létta hjarta þeirra.
Hverjir leggja í einelti?
Alltof margir leggja í einelti og ekki eru þeir í minni
hættu en þeir sem þeir leggja í einelti.
Samkvæmt rannsókn Dan Olweus frá 1993, þá
hafa 60% geranda sem náð hafa 24 aldri einn dóm eða
fleiri, og 35-40% fengið þrjá eða fleiri dóma
á þessum aldri.
En af hverju?
Gerandinn er ofdekraður heima fyrir.
Gerandanum líður illa heima fyrir.
Gerandanum langar að sýna sig.
Gerandinn sér veika hlið á fórnarlambinu og langar
að nýta sér það.
Gerandinn öfundar fórnarlambið að einhverju leyti.
Gerandanum líður illa og langar að öðrum líður
verr, en gagnstætt almennri trú þá er það
sjaldnast raunin.
Hvernig er hægt að vita að einhver
er lagður í einelti?
Það er ekki auðvelt á nvísbendinga þannig
að ég gef hér nokkrar. Þær eru teknar úr
heimasíðu Kidscape.
Fórnarlambið neitar að segja frá því
sem gerðist.
Fórnarlambið fer inn í sig, byrjar að stama, missir
sjálfstraust.
Fórnarlambið byrjar að skrópa.
Fórnarlambið hættir að sinna námi, fær slæmar
einkunnir.
Fórnarlambið byrjar að tala um að svipta sér líf,
eða gerir tilraun til þess.
Fórnarlambið er með sár, marbletti og klór sem
það getur ekki útskýrt.
Fórnarlambið verður óttaslegið, áhyggjufullt,
missir matarlyst.
Fórnarlambið gefur fráleita skýringar á
þeim atriðum sem hér hafa verin talin upp.
Hvernig á að halda sér
öruggum?
Við vitum öll að einelti er í öllum skólum
en það er aðferðin sem er notuð gegn því
sem skapar munin á að lífið verður þolanlegt
eða eymd.
Ef þú ert lagður/lögð í einelti segðu vini þinum, kennara eða skólastjóranum. Það mun ekki hætta nema þú gerir svo.
Ef gerendur hóta að berja þig eftir að þú
sagðir frá því, segðu þá kennaranum
eða skólastjóra frá því.
Haltu þig á "öruggum" svæðum, t.d. í mannþrönginni.
Í skólarútunni sestu þá sem nærst bílstjóranum.
Ef þú verður vitni að einelti segðu þá frá því.
[Hvað er FUME] [ Hvað er einelti] [Andlegt einelti ] [Líkamlegt Einelti] [Hver er tilgangurinn með þessu félagi] [Hverjir leggja í einelti] [En af hverju] [Hvernig er hægt að vita að einhver er lagður í einelti] [Hvernig á að halda sér öruggum] [Nokkur fyrirbyggjandi viðmið ] [Viðtöl við fórnarlömb ] [Þeir sem tengjast einelti] [ Þolendur] [Gerendur] [ Taglhnýtingar]
aftur á aðalsíðu