[Hvað er FUME] [ Hvað er einelti] [Andlegt einelti ] [Líkamlegt Einelti] [ Hver er tilgangurinn með þessu félagi] [ Hverjir leggja í einelti] [En af hverju] [Hvernig er hægt að vita að einhver er lagður í einelti] [ Hvernig á að halda sér öruggum] [Nokkur fyrirbyggjandi viðmið] [Viðtöl við fórnarlömb] [ Þeir sem tengjast einelti] [Þolendur ] [Gerendur] [ Taglhnýtingar]


Nokkur fyrirbyggjandi viðmið.
Þetta er tekið beint úr bókinni "Einelti" eftir Guðjón Ólafsson
Hér eru nokkur atriði sem vert er fyrir kennara og aðra er starfa með börnum að hafa í huga þegar verið er að leysa eineltismál og auka þannig líkur að vel takist til.

Reyndu að sjá árekstra fyrir og fyrirbyggja þá.
Leyfðu nemendum að vera hreinskilnir.
H lustaðu á það sem þeir hafa að segja, hvernig þeir segja það og reyndu að lesa úr hegðun án orða.
Ef þér verða á mistök, viðurkenndu þau.
Sýndu að þú ert tilbúin/n að sættast.
Dæmdu aldrei út frá óljósum upplýsingum.
Ekki láta í ljós grunsemdir, þú þarft að vera viss.
Vertu talsmaður bekkjarins.
Taktu tíma daglega í umfjöllun um samskiptavenjur.
Staðreyndir eiga að vera staðreyndir, tilfinningar = tilfinningar og reglur = reglur. Ekki láta sem tilfinningar þínar og skoðanir séu staðreyndir.
Þeim mun betra sem samband þitt við gerandann er, þeim mun sárara getur honum þótt að þú takir á honum.
Taktu ekki á geranda ef þér sýnist að tilfinningar hans ætla að bera hann ofurliði.
Taktu ekki á nemanda ef tilfinningar þínar eru ekki í jafnvægi.

Mat nemanda og kennara á forgangsröðun markmiða í skólastarfi: Hvaða forgangsröðun upplifa svarendur í eigin skóla? Hvernig telja svarendur að forgangsröðunin ætti að vera?

Forgangsröðun er þessi:
1. Að við skilum sem bestum árangri á prófum
2. Að kenna okkur það sem stendur í kennslubókum.
3. Að veita okkur starfsmenntun 
4. Að búa okkur undir æðri menntun 
5. Að kenna okkur að vinna saman
6. Að gera skólann eftirsóttum íverustað
7. Að kenna okkur til að efla með okkur sjálfsöryggi og trú á okkur sjálf

Ætti að vera:
1. Að kenna okkur til að efla með okkur sjálfsöryggi og trú á okkur sjálf
2. Að gera skólann eftirsóttum íverustað
3. Að veita starfsmenntun
4. Að kenna okkur að vinna saman
5. Að búa okku undir æðri menntun
6. Að við skilum sem bestum árangri á prófum
7. Að kenna okkur það sem stendur í kennslubókum
 

Viðtöl við fórnarlömb
Stundum finnst þér að þú sért sá eini í heiminnum sem er lagður í einelti. En svo er ekki.

Úr viðtali við Pál óskar Hjálmtýrssyni(1995):
"Ég kveið því að fara í skólann og ég var ekki nema sjö ára þegar ég fyrst neitaði að fara. Eineltið stóð yfir í tíu ár og ég losnaði ekki við það fyrr en annar strákur kom í bekkinn sem var álitinn enn meira 'nörd' en ég. Hann hreppti fyrsta sætið á eineltisvinsældalistanum. Hann var hið fullkomna skotamark – stamaðu og var seinfær í námi – þetta er geymt en ekki gleymt."

Úr frásögn fórnarlambs. Ráðstefna um einelti, 17. október 1998:
"Ég var mjög viðkvæm og það er auðvitað best að stríða krökkum  sem eru viðkvæmir og fara að gráta; ég fór alltaf að gráta útaf öllu."

Úr frásögn fórnarlambs. Ráðstefna um einelti, 17. október 1998:
"Þetta gekk svona áfram í þrjú ár eða þar til ég reyndi að fremja sjálfsmorð, en það var bara stórt kall á hjálp."

Úr frásögn fórnarlambs. Ráðstefna um einelti, 17. október 1998:
"Kennarinn hjálpaði mér ekki neitt – ég sagði honum oft frá því sem hafði komið fyrir mig og hvað væri alltaf  verið að segja við mig og gera við mig. Hann hlustaði ekki á mig."

Úr frásögn fórnarlambs. Ráðstefna um einelti, 17. október 1998:
"Mamma og pabbi fóru til skólastjórans til þess að ræða þetta mál en hann hlustaði ekki á þau. Hann sagði að krakkarnir í mínum bekk gætu ekki gert þetta því þau væru ekki svona illkvitnisleg. Það hlustaði enginn á okkur."
 

Ímyndið ykkur. Páll Óskar var lagður í einelti, Jón Gnarr, Bill Gates,  Kurt Cobain úr Nirvana, Mel Gibson og Michelle Pfeiffer. Og sjá hvað þau hafa náð langt. En hvað um þá sem lögðu í einelti. Enginn veit.


[Hvað er FUME] [ Hvað er einelti] [Andlegt einelti ] [Líkamlegt Einelti] [ Hver er tilgangurinn með þessu félagi] [ Hverjir leggja í einelti] [En af hverju] [Hvernig er hægt að vita að einhver er lagður í einelti] [ Hvernig á að halda sér öruggum] [Nokkur fyrirbyggjandi viðmið] [Viðtöl við fórnarlömb] [ Þeir sem tengjast einelti] [Þolendur ] [Gerendur] [ Taglhnýtingar]

aftur á aðalsíðu