[Hvað er FUME] [ Hvað er einelti] [Andlegt einelti ] [Líkamlegt Einelti] [ Hver er tilgangurinn með þessu félagi] [ Hverjir leggja í einelti] [En af hverju] [Hvernig er hægt að vita að einhver er lagður í einelti] [ Hvernig á að halda sér öruggum] [ Nokkur fyrirbyggjandi viðmið] [ Viðtöl við fórnarlömb] [Þeir sem tengjast einelti] [Þolendur] [Gerendur] [Taglhnýtingar]


Þeir sem tengjast einelti.
Þetta er útdráttur úr bókinni "Einelti".
Þeir sem tengjast einelti eru þolendur, gerendur og "taglhnýtingar".

Þolendur
Rannsóknir hafa leitt í ljós að nokkur sameiginleg einkenni þolenda, sem getur hugsanlega útskýrt af hverju sumir krakkar eru lagðir í einelti en ekki aðrir. Það eru börn sem verða fyrir einelti eiga það oft sameiginlegt að vera óöruggari, hræddari, hlédrægari, viðkvæmari, hæglátari, varkárari eða hæverskari en börn almennt. Einnig hefur komið í ljós að þessi börn eiga hlýrra og nánara samband við foreldra sína en önnur; þá sérstaklega við móður.
Einnig einkennir það þessi börn frekar en önnur að þau stríða ekki öðrum, eru ekki árásargjörn og eru í eðli sínu mótfallin ofbeldi og beita ógjarnan ofbeldi sjálf við lausn ágreinings.
Þó svo að nemendur nefni ýmis ytri einkenni á börnum sem tekin eru fyrir ástæðu eineltis hafa rannsóknir sýnt að miðað við jafnaldra eru þolendur ekkert frábrugðnir flestöllum krökkum. Eini marktæki munurinn er að þolendur eru líkamlega veikbyggðari en börn almennt.
Það skiptir ekki öllu máli hvers eðlis árásin er (líkamlegt eða andlegt einelti) heldur að vera stöðugt í skotlínunni er óþolandi. Það er þessi staða sem er hræðileg og skiptir þá minna máli hvað sagt er eða gert.
Einelti hefur sömu áhrif og annað ofbeldi. Fórnarlambið missir smátt allan þrótt, gleði og lífsvilja og kennir sjálfu sér jafnvel um hvernig komið er.
Þeir sem verða fyrir einelti eru því oft einmana og yfirgefnir í skólanum. Þeir hafa neikvæða sjálfsmynd og álíta sig heimska, mislukkaða og lítið aðlaðandi.

2.Gerendur.
Það sem einkennir þá sem leggja í einelti umfram önnur börn er árásarhneigð og jákvæð viðhorf til ofbeldis og ofbeldisverka. Þessir nemendur eru skapbráðir og vilja ráða yfir öðrum.
Öfugt við það sem oft hefur verið haldið fram af sálfræðingum og barna geðlæknum, að þessi nemendur séu í raun hræddir og óöruggir undir yfirboprðinu, kemur í ljós við athuganir að þeir eru miðlungs og yfir miðlungi öruggir með sig miðað við janfaldra.
Þessir nemendur eru líklegri en aðrir til að lenda í útistöðum við kerfið þegar kemur fram að fullorðnisár.
Það virðist að þessi börn hafa ekki fengið eins ákveðin skilaboð og önnur börn frá nánasta umhverfi sínu um muninn á réttu og röngu. Það virðist einnig að að þessi börn hafi fengið "harðari" aðferðir í uppeldinu af hálfu foreldra en börn almennt.

3. Taglhnýtingar

Oft er hópur taglhnýtinga með í því að kvelja aðra og eru þeir þá stundum með og stundum ekki. Þessir einstaklingar hafi ekki sömu einkenni og forystusauðirnir en dragast inn í atburðarrásina af ymsum ástæðum. Einhverjir hafa "lent í" gerandan áður og halda að það sé betra að vera með honum en gegn. Önnur ástæða er sú að sumir taka gerendur sem fyrirmynd og halda að þetta sé töff og viljast því líkjast þeim.
 

Megi þessar upplýsingar hjálpa að einhverju leiti.


[Hvað er FUME] [ Hvað er einelti] [Andlegt einelti ] [Líkamlegt Einelti] [ Hver er tilgangurinn með þessu félagi] [ Hverjir leggja í einelti] [En af hverju] [Hvernig er hægt að vita að einhver er lagður í einelti] [ Hvernig á að halda sér öruggum] [ Nokkur fyrirbyggjandi viðmið] [ Viðtöl við fórnarlömb] [Þeir sem tengjast einelti] [Þolendur] [Gerendur] [Taglhnýtingar]
 

aftur á aðalsíðu