Starfsemi
Stjórn
Saga félagsins
Meistaraflokksliðið
Rós mánaðarins
Vefir vikunnar
Staðan
Netkeppni TG og SA
Bikarmót Plúsferða
TGingurinn
Pistlahornið
Aðrar síður
Fréttir
Heim
Viðtal við Baldvin Gíslason
Spyrill: Hvað varð til þess að Taflfélag Garðabæjar fór af stað með Bikarmót Plúsferða?

Baldvin: Við í T.G. höfum lengi gælt við hugmyndina að koma af stað liðakeppni með bikarkeppnisfyrirkomulagi. Deildakeppnin var lengi vel eina liðakeppni félagsliða sem fram fór hér á landi, en sú keppni er jafnframt að margra mati hápunktur skáklífsins á hverju ári. Okkar mat hefur verið að það vantaði samsvarandi bikarkeppni og við fórum með tillöguna fyrir Aðalfund hjá Skáksambandinu fyrir mörgum árum síðan en einhvern veginn þá dagaði hugmyndin uppi hjá S.Í. þrátt fyrir góðar undirtektir. Fyrir nokkrum árum settu svo Hellismenn af stað Hraðskákkeppni taflfélaga sem fyllti þetta tómarúm upp að vissu marki. Það mót hefur fest sig í sessi og er mjög vinsælt enda skemmtileg keppni. Okkur í T.G. þótti þó enn sem það vantaði félagsliðakeppni með nokkuð öðru sniði og að það væri pláss og raunar viss þörf fyrir slíkt mót í skáklífið. Í ár þótti okkur kjörinn tími til að hrinda hugmyndum okkar í framkvæmd enda er mikil uppsveifla í skáklífinu og ekki síst hjá T.G.

Nú hefur umgjörð mótsins vakið athygli: Dregið var í beinni útsendingu á Rás 2 og skák á Lengjunni í fyrsta skipti, svo eitthvað sé nefnt. Hvernig hefur gengið að skapa þessa umgjörð?

Fyrir það fyrsta þá var aldrei spurning um annað en að við myndum gera þetta almennilega ef við færum út í að halda keppni sem þessa á annað borð. Við í Taflfélagi Garðabæjar höfum einfaldlega mikinn metnað og settum því markið hátt. Jói [Jóhann H. Ragnarsson – innsk. Vefstjóra] spilaði þar stórt hlutverk, í því að koma með góðar hugmyndir og hrinda þeim í framkvæmd. Það smitaði síðan út frá sér og við teljum að við höfum náð að skapa góða umgjörð til þessa. Þess verður líka að geta að forstöðumenn taflfélaga og skákmenn almennt hafa tekið mjög vel við sér og margir utan T.G. hafa veitt okkur lið við að gera mótið sem áhugaverðast. Mótið er nú heldur ekki byrjað enn og við erum með fleiri hluti í bígerð. Það er þó mikilvægt að muna að það er líka undir þeim liðum sem taka þátt í mótinu komið að leggja sín lóð á vogarskálarnar til að gera umgjörðina enn skemmtilegri. Það væri til að mynda gaman ef liðin myndu auglýsa sínar viðureignir á einhvern hátt og reyna að laða að áhorfendur.

Að lokum, hvaða félög heldur þú að verði í úrslitunum 10. desember?

Það er ómögulegt að spá um slíkt. Ég vona að það verði eitthvað um óvænt úrslit en jafnframt að besta liðið vinni. Hvert það er verður svo bara að koma í ljós.
Önnur viðtöl:
Björn Þorfinnsson
Ingvar Þ. Jóhannesson
Rúnar Sigurpálsson