Brauð


Sætar kökur og tertur

Steikt brauð

Smákökur

Fiskréttir

Brauð

Ís


Sendu mér póst

Rúgbrauð

2000 gr rúgmjöl
2 tsk salt
50 gr ölger
600 gr vatn
600 gr mjólk
1 tsk sykur

Ölgerið er hrært með sykrinum og 4-6 matskeiðum af mjólkinni. Rúgmjölið er vökvað með vatninu, mjólkinni og ölgerinu, sem búið er að hræra sundur. Saltið er svo látið í og allt hrært vel saman í nokkuð þykkt deig og látið svo vera á volgum stað (ca. 10°C) yfir nóttina. Morguninn eftir eru brauðin hnoðuð og elt, þar til þau eru slétt og sprungulaus. Látin svo á plötu og skornir í þau með hníf 2-3 skurðir þvert á ská. Látin svo lyfta sér hjá eldavélinni í 30 min. Þá eru þau vætt með mjólk eða vatni og bökuð svo í ofninum 1½-2 klst. Eigi þau að vera seyddari, má baka þau lengur, eða eins og hver vill. Hitinn má ekki vera of mikill og þarf að bera á þau mjólk eða vatn öðru hvoru. Þessi brauð er gott að baka í baukum. Eru þau þá baukarnir látnir í vélina áður en hún er heit, svo að brauðin hafi tíma til að lyfta sér.

Rúgbrauð
Laufabrauð