FRAMSÓKNARFLOKKURINN

 

 

FYLGI FLOKKSINS

Samkvæmt könnun Gallup í marsmánuði 1999 hefur Framsókn meiri ítök á meðal lágtekjufólks en hátekjufólks, með 21% fylgi á meðal þeirra sem eru með minna en 100.000 kr. í mánaðarlaun en aðeins 10% hjá þeim sem hafa meira en 300.000 kr.

Fylgi flokksins virðist vera nokkuð jafnt á meðal flestra aldurshópa, nema á meðal fólks á aldrinum 34-44, en þar nýtur flokkurinn nokkuð lægra fylgis, eða um 10%.

Flokkurinn virðist vera vinsælli á meðal kvenna en karla, með 18% fylgi gegn aðeins 14%.

Úr úrslitum Alþingiskosninganna 2003 kom Framsókn út sem þriðji stærsti flokkurinn með 32.484 atkvæði, á eftir Sjálfstæðismönnum og Samfylkingunni.

Mest fylgi fékk Framsókn í Norðausturlandskjördæmi með 32,8% atkvæða, en þar var hann með mest fylgi allra flokka. Hann var þriðji í öllum öðrum kjördæmum, en minnst fylgi fékk hann í Reykjavíkur- og Suðvesturkjördæmum, í kringum 10% atkvæða. Styrkleiki flokksins virðist meiri í sveitum landsins en á höfuðborgarsvæðinu.